Algengar spurningar

Eignarhald, bókanir, rekstur og næstu skref. Hér finnur þú svör við spurningum um Heimkomu.

Hér finnur þú svör við helstu spurningum um ferlið hjá Heimkomu. Við höfum safnað saman upplýsingum sem hjálpa þér að skilja þjónustuna okkar betur. Hvort sem þú ert að hugsa um kaup, sölu eða rekstur, finnurðu skýrar útskýringar hér. Markmiðið er að þú fáir öruggar og gagnsæjar upplýsingar áður en þú tekur ákvörðun.

Hvernig virkar Heimkoma

Heimkoma gerir þér kleift að njóta eignarinnar án þess að bera alla daglega ábyrgð. Við tökum að okkur rekstur, umsýslu og viðhald, svo þú getur slakað á. Ferlið er einfalt, gagnsætt og hannað með þínar þarfir í huga. Þú heldur áfram að njóta hússins á meðan við sjáum um restina.

Hvað fæ ég sem eigandi?

Þú eignast hlut í fasteign og færð árlegan nýtingarrétt. Í þriggja húsa samfélagi átt þú 8% í hverri þriggja eigna og færð 84 daga alls, 28 í hverri eign: 14 á háönn og 14 á deyfðartíma. Í stakri eign, þar með talið Heimkomu Reykjavík, átt þú 12% og færð 42 daga: 21 á háönn og 21 á deyfðartíma. Heimkoma annast umsýslu og rekstur. Bókanir ráðast af framboði, dagainneign og bókunarreglum.

Er þetta "time share" eða leiga?

Þetta er ekki „time share“. Þú átt hluta í fasteign og getur selt hann hvenær sem er samkvæmt samningi.

Getur Heimkoma breytt reglum?

Breytingar á bókunar-, hús- og útleigureglum fara eftir gildandi samningi og eru kynntar eigendum. Árlegur nýtingarréttur er 28 dagar í hverri eign í þriggja húsa samfélagi eða 42 dagar í stakri eign og Reykjavík. Breyting á framkvæmd bókana felur ekki sjálfkrafa í sér breytingu á þessum réttindum.

Hver sér um daglegan rekstur?

Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og allan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri eða viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og þau komu að henni. Eigendur geta valið að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.

Hvernig virkar bókunarkerfið?

Bókanir miðast við framboð og ónýtta, óráðstafaða daga þína í viðkomandi eign og réttindaári. Nota má háannadaga á deyfðartíma en ekki deyfðardaga á háönn. Lágmark um helgar og frí-/helgidaga er þrjár nætur í öllum vörum, einnig Reykjavík. Hámark samfelldrar háannadvalar er tvær vikur í hverri eign í þriggja húsa samfélagi og ein vika í stakri eign eða Reykjavík. Hafðu samband við Heimkomu til að fá kynningu og staðfesta aðgang og bókun fyrir þína eign.

Hvað gerist ef eigendur brjóta reglur?

Heimkoma tekur reglubrot til meðferðar samkvæmt húsreglum og gildandi samningi. Í samningsdrögum er gert ráð fyrir skriflegum áminningum og mögulegri innlausn við endurtekin brot. Viðurlög og skilyrði þeirra ráðast af undirrituðum samningi viðkomandi eiganda.

Hvað ef ég vil skipta um samfélag?

Hafðu samband við Heimkomu til að kanna skipti yfir í annað samfélag. Framboð, verðmunur, kostnaður og skilyrði skipta þurfa að liggja fyrir í samkomulagi; sjálfvirkur skiptiréttur er ekki tryggður.

Er Heimkoma sjálf með hlut í eigninni?

Já. Heimkoma heldur 4% eignarhlut í hverri eign. Tvær vikur á ári eru ætlaðar til eigin nota eða útleigu Heimkomu, ein á háönn og ein á deyfðartíma. Tvær aðrar vikur, báðar á deyfðartíma, eru fráteknar fyrir viðhald.

Hvernig virka bókanir?

Kerfið okkar er til sýningar fyrir áhuga saman. Bókaðu fund og við sýnum þér kerfið.

Kaup og fjármögnun

Við leiðum þig í gegnum allt ferlið frá fyrstu hugmynd að fullnaðarkaupum. Heimkoma tryggir að þú fáir skýra yfirsýn yfir kostnað og möguleika. Við aðstoðum við að finna hagkvæmustu fjármögnunarleiðirnar fyrir þig. Markmiðið er að gera kaupin örugg, einföld og án óvissu.
Hvernig virkar fjármögnunin?

Því miður getur Heimkoma ekki fjármagnað fyrir þig. Við mælum með að skoða að færa úr öðrum fjárfestingum (þar sem þetta er fjárfesting), bæta við láni á aðra fasteign sem þú átt eða bíð með þetta þar til þú ert tilbúin/n.

Hver er lágmarksinnborgun?

Heimkoma býður ekki eigin lánsfjármögnun. Greiðsluáætlun og kaupverð koma fram í tilboði og samningi. Í greiðslusamningsdrögum er miðað við að greitt sé fyrir þær eignir sem eru tilbúnar til afhendingar; því þarf að greina á milli afhentrar eignar og fyrirhugaðra eigna í þriggja húsa samfélagi.

Má veðsetja hlutinn minn?

Í sameignarsamningsdrögum er veðsetning sameignarhlutar óheimil. Kanna þarf gildandi samning áður en fjármögnun er ákveðin; ekki gera ráð fyrir að hægt sé að veðsetja hlutinn.

Hvað ef ég get ekki greitt gjöld?

Hafðu samband við Heimkomu ef greiðsluerfiðleikar koma upp. Samningsdrög gera ráð fyrir að vanskil sem nema þremur mánaðargjöldum geti leitt til stöðvunar afnota og sex gjöldum til innlausnar. Réttindi, tilkynningar og framkvæmd ráðast af gildandi, undirrituðum samningi.

Get ég keypt fleiri hluti?
Já, ef lausir hlutir eru í boði getur þú keypt fleiri til að auka afnotarétt.
Get ég selt hlutinn hvenær sem er?

Já, þú getur sett hlutinn í sölu á almennum markaði eða leitað aðstoðar Heimkomu. Sala er háð forkaupsrétti og öðrum skilyrðum gildandi samnings. Hvorki söluverð né sölutími er tryggður.

Hvernig er verð hlutanna ákvarðað?
Verð fer eftir markaðsvirði og stærð eignarinnar. Heimkoma getur kallað til matsmenn ef vafi er.
Hvað taka kaup á hlut langan tíma?

Það fer eftir því hvort eignin er tilbúin til afhendingar, fjármögnun kaupanda og frágangi samninga og greiðslna. Við förum yfir áætlaðan tíma fyrir viðkomandi eign áður en kaup eru ákveðin. Fyrsta dvöl þarf jafnframt staðfesta bókun.

Er hægt að fjármagna með eigin banka?

Þú getur kannað fjármögnun hjá eigin banka. Bankinn metur lánveitingu og tryggingar; Heimkoma tryggir ekki samþykki láns. Í sameignarsamningsdrögum er veðsetning sjálfs sameignarhlutarins óheimil.

Eru öll gjöld sýnd fyrirfram?

Fyrir kaup færðu yfirlit yfir kaupverð, gjöld og rekstraráætlun viðkomandi eignar eða samfélags. Kaupandi greiðir 0,8% tengigjald við fyrstu kaup og endursölu. Mánaðarleg umsýsla fyrir einn hlut er 5.000 kr. grunngjald og 4.000 kr. fyrir hverja eign: 9.000 kr. fyrir staka eign eða Reykjavík og 17.000 kr. fyrir þriggja húsa hlut. Rekstur, hússjóður og önnur samþykkt framlög bætast við. Umsýslugjaldið er því ekki allur mánaðarkostnaðurinn.

Get ég sett kaupin í félag?
Já, að því gefnu að félagið uppfylli skilyrði Heimkomu og kaupendur gangi að skilmálum.
Get ég skoðað húsið áður en ég kaupi?
Já, Heimkoma býður upp á skoðunarferðir fyrir væntanlega eigendur.

Fjölbreytni og sveigjanleiki

Aðal kosturinn er að þurfa ekki alltaf að fara á sama staðinn.

Það er gaman í Reykjaskógi, en það er ekki bara gaman í Reykjaskógi 🙂

Hjá Heimkomu getur þú selt, skipt, leigt eða bara notið þess sem þú átt. Allt kerfið er sett upp með sveigjanleika í huga til þess að auka fjölbreytileika.

Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti

Rekstur og ábyrgð

Við sjáum um allan daglegan rekstur eignarinnar þinnar.
Þar með talin er umsýsla, bókanir og samskipti við gesti eða eigendur.
Við tryggjum að viðhald sé sinnt og að eignin sé í toppástandi.
Þú getur treyst því að ábyrgðin sé í öruggum höndum.

Hver sér um viðhald?

Heimkoma annast skipulag og framkvæmd viðhalds. Eigendur greiða sinn rekstrarkostnað og sjóðsframlög samkvæmt áætlun og samningi. Umsýslugjaldið eitt felur ekki í sér að allar viðgerðir eða framkvæmdir séu innifaldar.

Má ég hafa áhrif á innréttingar eða útlit?
Nei, Heimkoma ræður vali á hönnun, húsgögnum og búnaði til að tryggja samræmt gæðastig.
Getum við bætt við eignina?

Viðbætur og stærri framkvæmdir þurfa samþykki samkvæmt sameignarsamningi og skýra kostnaðaráætlun. Í samningsdrögum eru 80% samþykki fyrir tilteknum framkvæmdum og 100% samþykki fyrir notkun rekstrarsjóðs. Í eign með bæði 8% og 12% hluti þarf að staðfesta atkvæðavægi og kostnaðarskiptingu áður en ákvörðun er tekin.

Hvað ef tjón verður á eign?

Tjón er tilkynnt Heimkomu og metið samkvæmt gildandi tryggingum og samningi. Tryggingavernd, sjálfsábyrgð og orsök tjóns ráða uppgjöri. Kostnaður sem tryggingar bæta ekki fer eftir ábyrgð og reglum viðkomandi eignar; ekki er hægt að lofa að hvert tjón verði að fullu bætt.

Hvað felst í rekstrargjöldunum?

Rekstrargjöld standa undir viðhaldi, tryggingum og rekstri. Hluti fer í sameiginlegan hússjóð sem safnast upp og er eign eigenda. Hússjóður dekkar stærri viðgerðir, uppfærslur og ef það verður tjón.

Hvar er rekstrarsjóðurinn geymdur?

Vörslufyrirkomulag rekstrarsjóðs kemur fram í samningi og fjárhagsupplýsingum viðkomandi eignar. Heimkoma veitir upplýsingar um reikning og skilmála sjóðsins; ekki er hér gefin almenn trygging fyrir verðtryggingu eða ávöxtun.

Hversu oft eru húsin þrifin?
Fagaðilar þrífa húsin mánaðarlega eða oftar ef þörf er á. Eigendur bera ábyrgð á að skila húsinu í sama ástandi og þeir komu að því. Hægt er að bóka þrif á eigin kostnað.
Er trygging innifalin í gjöldum?
Já, tryggingar á húsum og innbúi eru hluti af rekstri og eru hluti af umsjón Heimkomu.
Hvað gerist ef stórkostlegt tjón verður?

Heimkoma metur tjónið með tryggingafélagi og eigendum. Sé kostnaður umfram tryggingabætur og ráðstöfunarhæfan sjóð fer greiðsluskylda eftir orsök tjónsins og gildandi samningi. Kostnaðarskipting í eign með blandaða 8% og 12% hluti þarf að vera skýr áður en greiðslur eru ákvarðaðar.

Get ég óskað eftir viðbótarþrifum?

Já, hægt er að óska eftir aukaþrifum gegn gjaldi. Hafðu samband við Heimkomu til að staðfesta framboð, verð og pöntun fyrir viðkomandi eign.

Viltu sjá hvernig bókunarkerfið virkar?

Við sýnum þér bókunarkerfið á kynningarfundi.

Notkun og skipulag daga

Þú færð skýra og sveigjanlega skiptingu á þeim dögum sem þú hefur til umráða. Kerfið okkar gerir þér kleift að bóka daga með einföldum hætti. Við tryggjum sanngjarna dreifingu yfir árið fyrir alla eigendur. Þú getur nýtt eignina þegar það hentar þér best.
Hvernig er dögum skipt milli eigenda?

Í þriggja húsa samfélagi fylgja 8% eignarhlut í hverri eign 28 dagar á ári í hverju húsi: 14 á háönn og 14 á deyfðartíma. Samtals eru það 84 dagar eða 12 vikur í þremur húsum. Í stakri eign, einnig Reykjavík, fylgja 12% hlut 42 dagar eða sex vikur: 21 dagur á háönn og 21 á deyfðartíma. Heimkoma heldur 4% í hverri eign. Sama hús getur haft bæði 8% samfélagshluti og 12% staka hluti.

Hversu langt fram í tímann get ég bókað?

Samkvæmt bókunarregludrögum er almennur fyrirvari allt að 12 mánuðir. Þar er einnig heimild til einnar langtímabókunar á hverju 24 mánaða tímabili með allt að 24 mánaða fyrirvara; fyrri slík dvöl þarf að hafa verið nýtt áður en önnur er bókuð. Sérregla opnar júní–ágúst næsta árs 1. mars árið áður. Fram að 1. mars á dvalarárinu er sumarið bókað í heilum sjö nátta vikum. Staðfesta þarf viðeigandi reglur og framboð fyrir hverja bókun.

Má ég skipta dögum við aðra?

Dagaskipti innan samfélags þurfa að fara eftir bókunarreglum og vera samþykkt fyrir fram af Heimkomu. Ekki er almenn heimild til óheftra skipta milli óskyldra samfélaga. Skiptin þurfa að samræmast dagainneign og réttindum eigendanna.

Get ég geymt ónotaða daga milli ára?

Nýtingarrétturinn er árlegur. Ekki skal gera ráð fyrir sjálfvirkri yfirfærslu ónotaðra daga milli ára; staðfesta þarf meðferð þeirra samkvæmt gildandi samningi og bókunarreglum.

Hvað ef margir vilja bóka sama tíma?

Bókanir ráðast af framboði, dagainneign og bókunarreglum. Sami eigandi má ekki bóka sömu hátíð eða sama úrvalstímabil tvö ár í röð; í þriggja húsa samfélagi gildir það yfir öll húsin. Ef tímabilið er enn laust þremur mánuðum fyrir dvöl geta allir eigendur með næga daga af réttri tegund bókað. Með meira en þriggja mánaða fyrirvara má þriggja húsa eigandi bóka allt að tvær samfelldar sumarvikur í hvoru tveggja húsa, 2 + 2 vikur. Reglurnar tryggja ekki ákveðna viku.

Má ég bjóða gestum að vera með mér?

Já, gestir eru leyfðir ef þú ert á staðnum og fylgja húsreglum.

Get ég fengið fleiri daga?

Þú getur keypt fleiri eignarhluti ef þeir eru í boði og þannig aukið árlegan nýtingarrétt. Lausir dagar í dagatali veita ekki sjálfkrafa rétt til bókunar umfram dagainneign. Sérstaka viðbótardvöl þarf að semja um sérstaklega; ekki er hér lofað kaupum á aukadögum gegn föstu gjaldi.

Hvað gerist ef ég missi af bókunar opnun?

Þú getur kannað þá tíma sem eru enn lausir og bókað samkvæmt dagainneign og gildandi reglum. Í bókunarregludrögum er almennur fyrirvari 12 mánuðir og sérstök sumaropnun 1. mars fyrir sumarið árið eftir. Langtímabókun með allt að 24 mánaða fyrirvara er sérstök heimild með skilyrðum, ekki almenn opnun allra daga.

Get ég lánað hús til fjölskyldu?
Já. Þú mátt lána húsið til barna þinna og foreldra.
Hvernig virkar skiptikerfi?

Þú leggur fram ósk um dagaskipti. Samþykki annars eiganda og fyrirfram samþykki Heimkomu þarf til að skiptin taki gildi samkvæmt bókunarreglum. Hafðu samband til að fá aðstoð við skráningu og staðfestingu skiptanna.

Get ég lengt dvöl ef enginn er bókaður?

Það getur verið hægt ef tíminn er laus, þú átt næga ónýtta og óráðstafaða daga af réttri tegund í eigninni og lengingin samræmist bókunarreglum. Hámark samfelldrar háannadvalar er tvær vikur í þriggja húsa samfélagi og ein vika í stakri eign eða Reykjavík. Þriggja mánaða undanþága tryggir ekki lengri samfellda dvöl en þessi mörk.

Hvað ef ég kemst ekki í bókaða dvöl?

Hafðu samband við Heimkomu vegna afbókunar eða dagaskipta. Samkvæmt bókunarregludrögum þarf að afbóka með minnst tveggja vikna fyrirvara og með samþykki Heimkomu. Við síðari afbókun teljast dagar notaðir nema þeir nýtist með samþykktum dagaskiptum eða útleigu samkvæmt reglunum. Gildandi samningur ræður endanlegri afgreiðslu.

Má ég framselja bókaða daga?

Bókun er ekki frjálst framseljanleg. Samþykkt dagaskipti fara eftir bókunarreglum. Tekjudagar eru sérstakur valkostur þar sem þú leggur dagafjölda af árlegum nýtingarrétti í útleigu, án þess að velja ákveðnar dagsetningar. Tekjurnar geta lækkað kostnað þinn en eru ekki tryggðar.

Getur Heimkoma innleyst hlut ef ég brýt reglur?

Samningsdrög gera ráð fyrir að þriðja skriflega áminning geti leitt til innlausnar við tiltekin skilyrði. Þetta er ekki sjálfvirk afleiðing hvers reglubrots. Heimild, verðmat, frestir og framkvæmd ráðast af gildandi, undirrituðum samningi.

Hver ákveður reglur um notkun?

Heimkoma annast reglur um notkun og kynnir breytingar eigendum samkvæmt gildandi samningi. Árlegur nýtingarréttur miðast við vöruna: 28 dagar í hverri eign í þriggja húsa samfélagi eða 42 dagar í stakri eign og Reykjavík. Nákvæm framkvæmd bókana þarf að samræmast þeim réttindum.

Eru dýr leyfð?

Það fer eftir húsreglum viðkomandi eignar. Gæludýr eru leyfð í Húsafelli samkvæmt gestahandbók, að uppfylltum húsreglum og án tjóns eða ónæðis. Staðfestu reglur annarra eigna áður en þú kemur með gæludýr.

Sveigjanleiki í fyrirrúmi

You can sell, swap communities, or lease days – Heimkoma is designed to adapt to you.

Leiga og tekjur

Við sjáum um að leigja út eignina þegar þú ert ekki að nota hana. Þannig nýtist eignin sem tekjulind í stað þess að standa auð. Við annast alla markaðssetningu, bókanir og greiðsluuppgjör. Þú færð reglulega skýrslu um tekjur og nýtingu eignarinnar.
Má ég leigja út mína daga?

Já, Tekjudagar eru valkvæð leið þar sem Heimkoma annast útleiguna. Í stakri eign, þar með talið Reykjavík, velur þú 10, 20 eða 30 daga á ári. Í þriggja húsa samfélagi velur þú 25%, 50% eða 75% af bókunardögum þínum. Þú getur líka valið enga útleigu.

Framlagið er dagafjöldi í útleigulager ársins, ekki ákveðnar dagsetningar. Framlagðir dagar færast ekki sjálfkrafa aftur til eigin nota þótt þeir hafi ekki leigst út. Útleiga þarf að uppfylla skilyrði viðkomandi eignar og samnings.

Hvernig skiptast leigutekjur?

Fyrstu 14 útleigðu dagarnir í hverju húsi ganga upp í eigin daga Heimkomu og tekjur þeirra eru utan tekjupotts eigenda. Tekjur af frekari útleigu úr framlagi eigenda fara í sameiginlegan pott; í þriggja húsa samfélagi nær hann yfir húsin þrjú.

Fyrst er allur kostnaður vegna útleigu pottsins dreginn frá, meðal annars skattar og lögbundin gjöld vegna útleigunnar, þrif og þjónustugjöld bókunarveitna. Síðan renna 2% af eftirstöðvunum í rekstrarsjóð. Tekjugrunnur hvers eiganda miðast við dagaframlag hans sem hlutfall af heildarframlagi eigenda í viðkomandi pott.

Eigandi fær 50% af sínum tekjugrunni við 10 daga framlag í stakri eign eða 25% framlag í þriggja húsa samfélagi; 60% við 20 daga eða 50%; og 65% við 30 daga eða 75%. Afgangurinn rennur til Heimkomu. Þetta eru hlutföll af nettótekjugrunni, ekki ávöxtun á kaupverð. Tekjur ráðast af raunverulegri útleigu og kostnaði.

Má leigja út allar eignir?
Nei, reglur sveitarfélaga og skattamál geta takmarkað útleigu og haft áhrif á tekjur.
Hvernig fæ ég leigutekjurnar greiddar?

Í útleigusamningsdrögum eru nettótekjur eiganda fyrst nýttar til greiðslu gjalda hans á yfirstandandi ári. Eftirstöðvar eru greiddar eigi síðar en 31. janúar næsta árs. Uppgjör og greiðslufrestur fylgja gildandi samningi fyrir þína eign.

Hvað ef leigutaki veldur tjóni?

Heimkoma tekur við tjónstilkynningu og leitar úrlausnar samkvæmt skilmálum bókunarveitu og gildandi tryggingum. Meðferð kostnaðar sem fæst ekki bættur fer eftir gildandi útleigusamningi. Ekki er hér gefin óskilyrt trygging fyrir að Heimkoma greiði allt tjón.

Get ég notað þriðja aðila til útleigu?

Útleiga fer almennt í gegnum Heimkomu. Þú mátt ekki sjálfur leigja þriðja aðila eignina án fyrirfram samþykkis Heimkomu. Leyfi og rekstrarskilyrði þurfa jafnframt að vera í lagi fyrir viðkomandi eign.

Hvaða þjónustur notar Heimkoma til útleigu?
Heimkoma notar t.d. Airbnb, Booking.com og eigin kerfi.
Hvernig er leiguverð ákvarðað?

Heimkoma styðst við markaðinn, árstíðir og eftirspurn við verðlagningu. Markmiðið er góð nýting á viðeigandi verði. Viðmið um að leigja að jafnaði ekki meira en 70% framlagðra daga er rekstrarmarkmið, hvorki tryggð nýting né sjálfvirkt þak. Hvorki leiguverð né tekjur eru tryggð.

Fæ ég greiðsluyfirlit?

Já, þú færð uppgjörsyfirlit sem sýnir tekjur, frádrátt, gjöld og þinn hlut. Hafðu samband við Heimkomu um afhendingu og aðgang að yfirlitum fyrir þína eign.

Get ég breytt útleiguhlutfalli mínu?

Útleiguval er árlegt: 10, 20 eða 30 dagar í stakri eign og Reykjavík, eða 25%, 50% eða 75% í þriggja húsa samfélagi; einnig má velja enga útleigu. Samkvæmt útleigudrögum er valið fyrir 31. desember fyrir næstu tólf mánuði og breyting einu sinni á ári þarf fyrirfram samþykki Heimkomu. Óútleigðir framlagðir dagar skila sér ekki sjálfkrafa til eigin nota.

Hvaða skatta þarf að greiða?

Skattar og lögbundin gjöld vegna útleigunnar eru hluti þess kostnaðar sem dreginn er frá áður en nettótekjum er skipt. Eigandi fær uppgjör en ber sjálfur ábyrgð á eigin skattskilum. Nákvæm skattaleg meðferð fer eftir aðstæðum eiganda og útleigunnar; ekki er hér gefið almennt loforð um skattfrelsi eða að Heimkoma annist öll persónuleg skattskil.

Fyrir eigendur sem vilja selja

Heimkoma býður upp á lausn sem einfaldar söluna án þess að missa alla tengingu við eignina. Við sjáum um faglega markaðssetningu og söluferlið frá upphafi til enda. Þú getur selt hluta eignarinnar og haldið eftir notkunarrétti. Ferlið er gagnsætt, öruggt og hannað með hagsmuni þína í fyrirrúmi.
Hvernig sel ég hlutinn minn?

Þú getur sett hlutinn í sölu á markaði eða leitað aðstoðar Heimkomu. Forkaupsréttur og önnur skilyrði gildandi samnings gilda. Söluverð getur hækkað eða lækkað frá kaupverði, og kostnaður við sölu kemur fram í samningi.

Hvað ef hlutinn selst ekki?

Samningsdrög gera ráð fyrir að Heimkoma bjóðist til kaupa ef 18 mánuðir líða án sölu frá því að eigandi leitaði aðstoðar Heimkomu. Verðmat er háð samningsákvæðum, meðal annars takmörkun miðað við lægsta boð. Drögin heimila greiðslu með fimm ára skuldabréfi. Þetta er því ekki trygging fyrir staðgreiðslusölu eftir 18 mánuði; gildandi, undirritaður samningur ræður réttindum og greiðslukjörum.

Get ég selt hlutinn hvenær sem er?

Já, þú getur sett hlutinn í sölu á almennum markaði eða leitað aðstoðar Heimkomu. Sala er háð forkaupsrétti og öðrum skilyrðum gildandi samnings. Hvorki söluverð né sölutími er tryggður.

Hvernig ákvarðast markaðsvirði?

Við almenna sölu ráðast verð og eftirspurn af markaðnum. Samningsdrög gera ráð fyrir matsferli með matsmönnum við tilteknar aðstæður þegar tilboð liggja ekki fyrir. Nákvæm aðferð, takmarkanir og kostnaður við slíkt mat ráðast af gildandi samningi.

Má ég selja beint án Heimkomu?
Já, en Heimkoma þarf að fá tilkynningu og hefur forkaupsrétt áður en salan fer fram. Nýr kaupandi þarf að gangast undir sameignarsamning.
Hversu lengi tekur sala yfirleitt?
Fer eftir markaði. Heimkoma vinnur að sölu og auglýsingu ef óskað er.
Hvað kostar að nota Heimkomu við sölu?

Kaupandi greiðir 0,8% tengigjald af kaupverði við endursölu, eins og við fyrstu sölu. Það er sama gjaldið og umsýslugjald vegna aðilaskipta, ekki tvö gjöld fyrir sömu aðgerð. Sérstök söluþjónusta og kostnaður seljanda þurfa að koma fram í samningi áður en þjónustan hefst.

Get ég sett lágmarksverð á hlutinn minn?
Já. Eins og með aðrar fasteignir ræður seljandi verði. Eins og með aðrar fasteignir seljast ekki eignir sem eru verðlagðar yfir markaðsverði.
Má nýr eigandi breyta hlutfalli daga?

Dagafjöldi fylgir þeim hlut sem er keyptur: 8% í hverri þriggja eigna veita 28 daga í hverri eign, en 12% stakur hlutur veitir 42 daga. Nýr eigandi getur ekki einhliða breytt þeirri úthlutun. Tekjudagaval er sérstök ákvörðun samkvæmt útleigureglum.

Hver sér um lögfræðilega vinnu við sölu?

Heimkoma annast umsýslu við aðilaskipti samkvæmt samningi og samræmir nauðsynlegan frágang. Kaupandi greiðir 0,8% tengigjald; ekki bætist sjálfkrafa við annað sams konar aðilaskiptagjald. Umfang frekari lögfræðivinnu og kostnaður við hana þurfa að liggja fyrir í samkomulagi.

Hvað ef markaðsvirði fellur?

Verð fasteigna og eignarhluta getur bæði hækkað og lækkað. Við sölu geturðu fengið lægra verð en þú greiddir. Markaðsaðstæður, tilboð og eftir atvikum samningsbundið verðmat ráða verði; verðhækkun og endurheimt kaupverðs eru ekki tryggð.

Viltu sjá hvernig bókunarkerfið virkar?

Við sýnum þér bókunarkerfið á kynningarfundi.

Haldið & sleppt

Með þessari lausn geturðu losað um bundið fé án þess að segja eigninni alveg skilið. Þú selur hluta eignarinnar en heldur áfram að njóta hennar hluta ársins. Við sjáum um alla sölumeðferð, umsýslu og daglega reksturinn. Þú færð fjárhagslegt svigrúm á meðan þú heldur áfram að njóta ávinningsins.
Hvað er „Haldið & sleppt“?

Þetta er þjónusta fyrir eigendur orlofseigna sem vilja selja hluta í húsinu sínu innan Heimkomu og lækka þannig skuldbindingar og kostnað, en halda áfram að njóta hússins án þess að þurfa að sjá um viðhald eða umsýslu.

Þarf Heimkoma að kaupa húsið mitt?

Nei, ekki þarf að selja Heimkomu allt húsið. Með „Haldið & sleppt“ er samið um að færa eignina í sameignarfyrirkomulag og selja hluta hennar. Í hreinni stakri eign eru átta 12% viðskiptavinahlutir, samtals 96%, og Heimkoma heldur 4%. Þú getur haldið eftir hlutum samkvæmt samningi. Þetta eru ekki átta jafnir 12% hlutir.

Hve margar vikur fæ ég til notkunar?

Í stakri eign fylgja hverjum 12% hlut sex vikur eða 42 dagar á ári: 21 dagur á háönn og 21 á deyfðartíma. Í „Haldið & sleppt“ getur seljandi samið um að halda allt að fjórum af átta 12% hlutum. Heimkoma heldur 4% og tveimur eigin vikum, einni á háönn og einni á deyfðartíma; tvær viðhaldsvikur eru báðar á deyfðartíma. Bókanir fylgja framboði og reglum, þar á meðal einnar viku hámarki samfelldrar háannadvalar fyrir staka eign.

Hvað gerist ef hlutirnir mínir seljast ekki?

Sölutímabil og skilyrði þess að draga eign úr fyrirkomulaginu þurfa að koma fram í samningi. Eldri kynning miðaði við 12 mánaða sölu og endurskoðun ef færri en fjórir hlutir seldust; það er ekki hér sett fram sem almenn, óskilyrt útgöngutrygging. Heimkoma kaupir ekki sjálfkrafa óseldar einingar. Meðferð uppfærslu- og rekstrarkostnaðar þarf einnig að vera skýr í samningnum.

Hver ber kostnað meðan á sölu stendur?

Seljandi greiðir allan rekstrarkostnað (viðhald, tryggingar, fasteignagjöld) þar til hlutir hafa selst. Nýir eigendur taka þátt í kostnaði frá afhendingardegi.

Hvað kostar þetta fyrir mig sem seljanda?

Heimkoma tekur 4% eignarhlut sem þjónustuþóknun. Uppfærslukostnaður og rekstrarkostnaður á meðan sala stendur eru á þína ábyrgð, nema annað sé sérstaklega samið.

Hver sér um uppfærslu hússins?

Heimkoma stýrir og framkvæmir allar nauðsynlegar uppfærslur til að húsið uppfylli H-klassa gæðastaðal. Ef sala mistekst, ber seljandi kostnað af uppfærslu, en nýtur þeirra góðu kjara sem Heimkoma hefur.

Get ég keypt aftur fleiri hluti síðar?

Já, ef hlutir verða til sölu og kaup eru heimil samkvæmt samningi geturðu aukið eignarhlut þinn. Í „Haldið & sleppt“ þarf að semja um fjölda hluta sem þú heldur eða kaupir. Forkaupsréttur Heimkomu er ekki sjálfkrafa forkaupsréttur fyrir þína hönd og framboð síðar er ekki tryggt.

Hvað þarf ég sjálfur að gera í ferlinu?
Þú þarft aðeins að samþykkja uppfærsluna, skrifa undir samninga og ákveða hversu marga hluti þú heldur. Heimkoma sér um allt annað: sölu, markaðssetningu, bókanir og viðhald.
Hvers vegna ætti ég að velja þessa lausn?
Þú lækkar skuldbindingar, losar um eigið fé, heldur áfram að njóta hússins, og losnar við allt vesen sem fylgir viðhaldi og umsýslu – Heimkoma sér um það allt.
Hversu fljótt get ég byrjað að selja hluta?
Markaðssetning hefst almennt innan mánaðar frá því að samningar eru undirritaðir og húsið hefur verið samþykkt.
Hvað græði ég fjárhagslega á þessu?

Með sölu hluta geturðu losað fé sem er bundið í húsinu og deilt rekstrarkostnaði með nýjum eigendum, á meðan þú heldur þeim hlutum og nýtingarrétti sem samið er um. Fjárhagsleg niðurstaða ræðst af söluverði, uppfærslum, gjöldum og áframhaldandi kostnaði. Sparnaður, söluverð og ávöxtun eru ekki tryggð.

Hvað ef ég vil selja alla hlutina og halda engu eftir?

Það er hægt að semja um að selja alla þá viðskiptavinahluti sem þú heldur eftir í fyrirkomulaginu. Samningurinn þarf að tilgreina kaupverð, kostnað og 4% hlut Heimkomu. Kaup á hlut síðar ráðast af framboði og gildandi skilyrðum; þau eru ekki tryggð.

Hvernig er tryggt að húsið sé í toppstandi?

Heimkoma sér um reglulegt viðhald, þrif og gæðaskoðanir. Húsið uppfyllir H-klassa staðal og er í umsjón fagfólks allt árið.

Af hverju ætti ég að velja Heimkomu fram yfir aðra lausn?

Heimkoma getur hentað ef þú vilt halda minni eignarhluta og fela öðrum daglega umsýslu. Við annast söluferlið, skipulag uppfærslna, viðhald og bókanir samkvæmt samningi. Þú greiðir áfram gjöld og rekstrarkostnað sem fylgja þeim hlutum sem þú heldur, og sinnir ábyrgð eiganda á góðri umgengni. Ávinningurinn er minni dagleg umsýsla og möguleiki á að losa fé úr eigninni.

Viltu sjá hvernig bókunarkerfið virkar?

Við sýnum þér bókunarkerfið á kynningarfundi.

Tengt efni

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.