Sveigjanleiki milli ára
Þú getur skoðað útleigu þegar vinna, fjölskyldulíf eða ferðalög draga úr eigin notkun. Þátttaka er valkvæð og ákveðin fyrirfram.
Tekjudagar eru einföld leið til að nýta afnotadaga sem þú ætlar ekki að nota sjálfur — með útleigu í umsjón Heimkomu.

Þú leggur fram fjölda daga í útleiguframboð ársins. Þú velur ekki ákveðnar dagsetningar til að leigja sjálfur út.
| Útleiguval | Stök eign og Reykjavík | Þriggja húsa samfélag | Hlutur eiganda í úthlutuðum nettótekjum |
|---|---|---|---|
| Engin útleiga | 0 dagar | 0% | — |
| Leið 1 | 10 dagar | 25% af dögum | 50% |
| Leið 2 | 20 dagar | 50% af dögum | 60% |
| Leið 3 | 30 dagar | 75% af dögum | 65% |
Val fyrir næsta ár fer fram fyrir 31. desember. Breyting á framlagi þarf samþykki Heimkomu. Framlagðir dagar verða hluti af útleiguframboði ársins og ganga ekki sjálfkrafa aftur til eigin nota ef þeir leigjast ekki út.
Þú getur skoðað útleigu þegar vinna, fjölskyldulíf eða ferðalög draga úr eigin notkun. Þátttaka er valkvæð og ákveðin fyrirfram.
Þú þarft ekki að setja upp auglýsingar, svara fyrirspurnum frá gestum eða skipuleggja þrif eftir dvöl. Umsýslan er hjá Heimkomu.
Útleigutekjur geta komið á móti kostnaði við eignina. Raunveruleg áhrif ráðast af bókunum og uppgjöri; tekjur eru ekki tryggðar.

Heimkomu-eignir eru fyrst og fremst ætlaðar eigendum. Útleiga er takmörkuð og stýrð svo hún falli að sameiginlegri notkun. Eigendur eiga afnot samkvæmt sínum hlut, en ekki fasta daga sem hægt er að auglýsa sjálfstætt.
Heimkoma sér um auglýsingar, bókanir og samskipti við gesti. Gestir fá leiðbeiningar og aðgang samkvæmt kerfi Heimkomu og fagþrif fara fram eftir útleigu.
Ein umsýsla styður við samræmd gæði, skýra ábyrgð og yfirsýn. Fyrir þátttöku förum við yfir mörk útleigu, bókunarfyrirvara og það hvernig tekið er tillit til annarra eigenda.
Skoða bókunarreglur ↗Tekjur ráðast af raunverulegri útleigu. Framlag hvers eiganda og valin þátttökuleið ákvarða síðan hlutdeild hans.
Fyrstu 14 útleigðu dagarnir í hverju húsi ganga upp í eigin daga Heimkomu. Tekjur af þeim eru utan tekjupotts eigenda.
Tekjur af frekari útleigu úr dagaframlagi eigenda fara í sameiginlegan pott. Í þriggja húsa samfélagi sameinast þessar tekjur yfir húsin þrjú.
Allur viðkomandi útleigukostnaður er dreginn frá, þar á meðal þrif, bókunarþóknanir og gjöld vegna útleigunnar. Síðan renna 2% af eftirstöðvunum í rekstrarsjóð. Kostnaðurinn sjálfur ber ekki 2% álag.
Dagaframlag þitt deilt með heildardagaframlagi eigenda ákvarðar þinn hluta tekjugrunnsins. Síðan færð þú 50%, 60% eða 65% þess hluta eftir þátttökuleið; afgangurinn er hlutur Heimkomu.
Nettótekjur eiganda ganga fyrst upp í gjöld hans á árinu. Eftirstöðvar eru greiddar eigi síðar en 31. janúar næsta árs samkvæmt útleigureglum. Eigandi sér um eigin skattskil.
Útleiga til gesta er með allt að sex mánaða fyrirvara. Viðmið um 70% nýtingu framlagðra daga er rekstrarmarkmið, ekki tryggð nýting eða sjálfvirkt hámark. Raunveruleg nýting hefur þegar áhrif á tekjur pottsins og er ekki margfölduð aftur við úthlutun.
Eftir allan viðkomandi kostnað og 2% sjóðsframlag. Eigendur lögðu samtals 200 daga í pottinn; þitt framlag var 20 dagar.
Þinn tekjugrunnur er 100.000 kr. Við 60% tekjuhlutdeild eiganda koma 60.000 kr. í þinn hlut og 40.000 kr. í hlut Heimkomu.
Skýringardæmi um úthlutun, ekki tekjuspá. Tekjur af eigin dögum Heimkomu og þeir dagar sjálfir eru utan þessa potts.
Tekjudagar eru valkvætt útleigufyrirkomulag fyrir eigendur Heimkomu. Þú leggur ákveðinn fjölda af þínum afnotadögum í sameiginlegt útleiguframboð og Heimkoma annast framkvæmdina samkvæmt reglum samfélagsins.
Nei. Framlagið er fjöldi daga, ekki tilteknar dagsetningar sem þú bókar og leigir síðan út sjálfur. Heimkoma samræmir útleiguframboð og bókanir þannig að tekið sé tillit til eigenda og reglna eignarinnar.
Þátttaka er valkvæð. Í stakri eign og Reykjavík velur þú 10, 20 eða 30 daga; í þriggja húsa samfélagi 25%, 50% eða 75%. Einnig má velja enga útleigu. Framlagið er dagafjöldi fyrir árið og gengur ekki sjálfkrafa aftur til eigin nota.
Öll útleiga fer í gegnum Heimkomu. Samræmd umsýsla heldur utan um framboð, gesti, þrif og reglur og kemur í veg fyrir að sjálfstæðar útleigubókanir rekist á notkun annarra eigenda.
Nei. Tekjur ráðast meðal annars af eftirspurn, verði, bókunum og kostnaði. Fjöldi daga sem þú leggur fram er ekki loforð um sama fjölda seldra gistinátta eða ákveðna ávöxtun.
Heimkoma veitir yfirsýn yfir framlag, nýtingu og uppgjör. Hafðu samband til að fá upplýsingar um þína eign.
Tekjudagar snúast um skipulagða útleigu og mögulegar tekjur. THIRDHOME snýst um húsaskipti: samþykkt dvöl getur skapað ferðainneign til að bóka aðrar eignir. Þú getur ekki ráðstafað sömu afnotum í bæði kerfin samtímis.
Eigðu heimili til að njóta sjálfur. Þegar áætlanir breytast geturðu skoðað Tekjudaga fyrir útleigu eða THIRDHOME fyrir ferðalög. Ráðstöfun daganna þarf alltaf að samræmast reglum eignarinnar.
Kynntu þér THIRDHOME ↗Segðu okkur hvernig þú sérð fyrir þér árið. Við förum yfir eigin notkun, Tekjudaga, kostnað og reglur þeirrar eignar sem þú hefur áhuga á.
Bóka kynningu á Tekjudögum