Frístundahús Heimkomu í Húsafelli, sýnt til að gefa hugmynd um upplifunina
ForsíðaHaldið & sleppt
Haldið & sleppt

Haltu þínum stað.
Losaðu um fjármagn.

Þú þarft ekki að selja allt húsið til að breyta því hvernig þú átt það. Seldu hluta af frístundahúsinu, haltu áfram að eiga og njóta — og láttu Heimkomu sjá um umsjónina.

Húsafell · Mynd úr eignasafni Heimkomu til skýringar, ekki eign auglýst í Haldið & sleppt.

Sami staður. Nýtt svigrúm.

01

Fjármagn til að gera meira.

Losaðu hluta af verðmætunum sem eru bundin í húsinu og skapaðu svigrúm fyrir það sem kemur næst.

02

Þinn staður áfram.

Haltu 1–4 eignarhlutum og njóttu 6–24 vikna á ári á staðnum sem þér þykir vænt um.

03

Minna að sjá um.

Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón. Þú færð meiri tíma til að njóta.

Þú selur 4–7 af átta 12% eigendahlutum og heldur afganginum. Við lokun fær Heimkoma 4% og eignin verður Samfélag um eina eign.

Þitt hús. Þitt dæmi.

Hvað gæti losnað?

Tvær forsendur. Sjáðu hvað þú gætir selt — og hvað þú heldur eftir.

kr.

Áætlað virði allrar eignarinnar í íslenskum krónum.

Hve marga af 8 hlutum viltu selja?

Hver hlutur er 12% eignarhlutur og veitir 6 vikur á ári.

Áætlað söluandvirði—

Skráðu forsendurnar til að sjá þitt dæmi.

  • Seldir hlutir
  • Þín eign áfram
  • 4% Heimkoma við lokun
—Afnot á ári
—Áætlað virði þíns eignarhlutar
Skoðum þetta saman

Söluandvirði er fyrst nýtt til að greiða upp lán á húsinu áður en eftirstöðvar eru greiddar út. Útreikningurinn er fyrir kostnað og skatta.

Reiknidæmi, ekki tilboð. Verð og söluskilyrði eru staðfest í samningi. Afnot fara eftir bókunarreglum og eru hlutfölluð fyrsta árið.

Fjórar leiðir. Sama hús.

Samanburður miðað við áætlað virði hússins. Veldu leið til að uppfæra reiknidæmið.
Hlutar í söluSöluandvirðiHlutar eftirEign eftirVikur á áriVelja leið

Frá hugmynd að nýju fyrirkomulagi

Skref fyrir skref.
Með þér alla leið.

Haldið & sleppt er leiðin inn í Samfélag um eina eign. Við mótum ferlið út frá húsinu og þínum markmiðum.

  1. 01

    Þitt hús, þín markmið

    Við ræðum stöðuna, þínar óskir og helstu upplýsingar um eignina.

  2. 02

    Mat og H-Klassi

    Eignin er skoðuð, verðmæti metin og áætlun um nauðsynlegar uppfærslur gerð.

  3. 03

    Skýr samningur

    Þú samþykkir verð, sölutímabil og lágmarks- og hámarksfjölda hluta í sölu.

  4. 04

    Kaupendahópur myndast

    Við kynnum eignina og söfnum skilyrtum skuldbindingum kaupenda.

  5. 05

    Sameiginleg lokun

    Greiðslur, undirritun, eignayfirfærslur og innganga í rekstur Heimkomu eru samræmd.

Þitt lágmark ræður.

Veljir þú fimm hluti sem lágmark þarf að tryggja sölu fimm hluta fyrir lokun. Lágmarkið snýst um hluti, ekki fjölda kaupenda. Náist það ekki innan umsaminna tímamarka verður ekki af fyrirkomulaginu nema framlenging sé samþykkt.

Tíminn fer eftir eigninni, undirbúningi og eftirspurn. Sölutími og afhending eru ekki fyrirfram tryggð.

H-Klassi Heimkomu

Þitt hús.
Tilbúið fyrir nýjan kafla.

Við förum yfir gæði, búnað og ástand hússins saman. Markmiðið er að allir geti komið að vel búnu heimili og notið dvalarinnar.

Bjart forrými og vandaður húsbúnaður í Húsafelli
Húsafell · Dæmi um gæði Heimkomu, ekki eign í Haldið & sleppt sölu.
FYRIR SÖLU

Viðgerðir skilgreindar.

Samþykktar forviðgerðir eru á þína ábyrgð sem seljanda.

SKÝR KOSTNAÐARÁÆTLUN

Uppfærsla ákveðin saman.

Víðari H-Klassa uppfærsla er kostnaðarmetin áður en söluferlið hefst. Þitt umsamið framlag dregst frá söluandvirði við uppgjör.

VIÐ LOKUN

Nýtt eignarhald tekur við.

Afnot fyrsta árs eru hlutfölluð frá lokun. Raunveruleg afhending og opnun bókana taka mið af því hvenær uppfærslum lýkur.

Lífið eftir söluna

Þú átt. Þú nýtur.
Við sjáum um rest.

Eignarhluturinn heldur áfram að vera þinn. Þú velur hvernig þú nýtir dagana innan reglna Heimkomu.

ÞINN STAÐUR6 vikur

Fyrir hvern hlut sem þú heldur.

Hver 12% hlutur veitir 42 daga á ári. Bókaðu þínar dvalir samkvæmt sameiginlegum bókunarreglum.

Bókanir og reglur
TEKJUDAGARNýtast áfram.

Þegar þú nýtir ekki alla dagana.

Settu hluta af dagafjöldanum í Tekjudaga. Heimkoma sér um útleiguna samkvæmt gildandi skilmálum. Leigutekjur og nýting eru ekki tryggð.

Kynntu þér Tekjudaga
Sólarströnd og sundlaugar, dæmi um ferðaupplifun
THIRDHOME

Þinn staður hér.
Fleiri staðir úti.

Nýttu vikur til húsaskipta samkvæmt aðildar- og bókunarskilmálum. Framboð, samþykki og gjöld ráða því hvaða dvöl stendur til boða.

Skoðaðu ThirdHome Mynd til skýringar. Framboð er breytilegt.
Gott að vita áður en þú ákveður þig

Skýr svör.
Góð ákvörðun.

Við förum yfir samning, kostnað og afnot með þér áður en nokkuð er ákveðið.

Ræðum þitt hús
Hvað á ég áfram og hve lengi get ég dvalið?
Þú heldur 1–4 af átta eigendahlutum. Hver hlutur er 12% og veitir sex vikur, eða 42 daga, á ári samkvæmt bókunarreglum. Afnot fyrsta árs eru hlutfölluð frá lokun. Dagarnir eru ekki fyrirframvaldar vikur. Átta eigendahlutir eru samtals 96%; Heimkoma fær hin 4% við lokun.
Er nóg að fjórir hlutir seljist?
Aðeins ef fjórir eru umsamið lágmark fyrir þína eign. Þú ákveður lágmark og hámark í upphafssamningi, innan 4–7 hluta. Sé lágmarkið fimm þarf að tryggja sölu fimm hluta. Þetta er fjöldi hluta, ekki krafa um jafnmarga einstaklinga. Náist lágmarkið ekki á umsömdu sölutímabili verður ekki af fyrirkomulaginu nema framlenging sé samþykkt.
Hvernig fara greiðslur og lokun fram?
Greiðslur, undirritun og eignayfirfærslur eru samræmdar við sameiginlega lokun. Eignin þarf að vera skuldlaus við lokun og söluandvirði er fyrst nýtt til að greiða upp lán á henni. Umsaminn kostnaður er gerður upp áður en eftirstöðvar eru greiddar út. Heimkoma fær 4% eignarhlut við lokun, ekki þegar markaðssetning hefst. Raunveruleg afhending og upphaf bókana ráðast einnig af uppfærsluáætlun.
Hver greiðir H-Klassa uppfærsluna?
Samþykktar forviðgerðir eru á ábyrgð seljanda. Víðari uppfærsla er kostnaðarmetin fyrir söluferlið og umsamið framlag seljanda dregst frá söluandvirði. Í vinnugögnum er uppfærslunni dreift á átta eigendahluti. Sú skipting er vinnuforsenda sem þarf að staðfesta í samningi, ekki endanleg lögfræðileg eða skattaleg niðurstaða. Þessi kostnaður er ekki reiknaður í reiknivélinni.
Hvaða mánaðarkostnaður fylgir hlutunum mínum?

Allir eigendur, líka upphaflegi eigandinn, greiða frá lokun. Hver eigendahlutur ber einn áttunda af raunverulegum sameiginlegum rekstri og hússjóði. Heimkoma sér um umsýslu, greiðslu gjalda og viðhald samkvæmt samningi.

Fjölhlutaafsláttur gildir eingöngu um umsýslugjald Heimkomu: fyrsti hlutur ber 100% grunngjalds, annar 60%, þriðji 40% og fjórði 25%. Enginn slíkur afsláttur er af raunverulegum rekstrarkostnaði eða hússjóði. Gildandi verðskrá og rekstraráætlun fylgja samningi.

Hef ég sérstakan forgang sem upphaflegi eigandinn?
Nei. Sömu bókunarreglur gilda um alla eigendur. Þú hefur hvorki sérstakan bókunarforgang né sérstakan forgang til að kaupa til baka hluti sem aðrir selja.
Get ég selt hlutina mína síðar?
Já, samkvæmt gildandi framsalsskilmálum. Hlutir sem þú heldur við stofnun falla ekki undir umsamið 18 mánaða endurkaupaúrræði nýrra kaupenda. Það úrræði er háð kaupendasamningi og er ekki skilyrðislaus útgreiðsla á tryggðu verði. Við síðara framsal ráðast réttindi nýs kaupanda af gildandi kaupendaskilmálum.
Hver greiðir 0,8% tengi- og umsýslugjaldið?
Nýr kaupandi greiðir 0,8% tengi- og umsýslugjald við fyrstu kaup og við síðari framsöl samkvæmt gjaldskilmálum. Það er ekki aukafrádráttur hjá seljanda í reiknivélinni. Þar er heldur ekki dregið aftur frá vegna 4% eignarhlutar Heimkomu.
Get ég notað Tekjudaga eða ThirdHome?
Já, innan þeirra reglna og skilmála Heimkomu sem gilda hverju sinni. Heimkoma annast Tekjudaga en leigutekjur eru ekki tryggðar. Húsaskipti í gegnum ThirdHome ráðast af aðild, samþykki, framboði, bókunarskilmálum og gjöldum.
Næsti kafli byrjar á samtali

Skoðum þetta saman

Segðu okkur frá húsinu og því sem þú vilt ná fram. Við förum yfir möguleikana með þér.

Reiknidæmið þitt fylgir fyrirspurninni.

Forsendurnar úr reiknivélinni fylgja sjálfkrafa með. Hörður fer yfir fyrirspurnina þína. Þú ert ekki sjálfkrafa skráður í fréttabréf.

hordur@heimkoma.app

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Þú getur áfram notað reiknivélina og sótt samantekt.

Persónuvernd