Svona virkar Heimkoma

Eignarhald sem
hentar þínu lífi.

Þú kaupir hlut í einni eða fleiri fasteignum, nýtir þær í samræmi við þinn hlut og deilir kostnaði. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón.

Bóka fund
Valkostir Heimkomu

Berðu leiðirnar saman.

Kaupverð í íslenskum krónum. Rekstrarkostnaður og önnur gjöld samkvæmt samningi.
FyrirkomulagHeimkoma ReykjavíkStakt frístundahúsÞriggja eigna samfélag
EignÍbúð á HeklureitHúsafell eða AkureyriHúsafell, Akureyri og Suðurland
Árleg notkun6 vikur / 42 dagar6 vikur / 42 dagar í hverju húsi12 vikur / 84 dagar við fulla afhendingu
Kaupverð14,4 m.kr. á hlutHúsafell: 16 m.kr.
Akureyri: 17 m.kr.
33 m.kr. samtals
AfhendingNánari upplýsingar væntanlegarBæði hús tilbúin til notkunarTvö hús afhent.
Þriðja húsið vorið 2027.
UmsjónHeimkoma sér um rekstur og viðhald. Eigendur deila kostnaði samkvæmt samningi.

Heimkoma Reykjavík

Íbúð í Reykjavík bætist við frístundahúsin og þriggja eigna samfélagið. Sex vikur, eða 42 dagar, fylgja hverjum hlut á ári. Fyrsta Heimkomu-íbúðin verður í nýbyggingu við Laugaveg 170 á Heklureit.

Kynntu þér Heimkoma Reykjavík

Eigðu þinn stað í fríinu með öðrum. Þú velur eignarhlut í einu húsi, tveimur stökum húsum eða þriggja eigna samfélagi. Heimkoma sér um rekstur og viðhald svo þú getir notið tímans.

Eignarhald sem hentar þínu lífi

Þú kaupir eignarhlut í frístundaeign með öðrum, nýtir hana í samræmi við þinn hlut og deilir kostnaði. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón.

Stök eign er í boði núna í Húsafelli og á Akureyri. Þú getur keypt 12% hlut í öðru húsinu eða báðum. Hver hlutur veitir 6 vikur, eða 42 daga, á ári í viðkomandi húsi.

Í þriggja eigna samfélagi kaupir þú 8% hlut í þremur eignum. Honum fylgja samtals 12 vikur, eða 84 dagar, á ári þegar allar þrjár eignir hafa verið afhentar.

12% hlutur

Húsafell: 16 m.kr. Akureyri: 17 m.kr. Þú kaupir 12% hlut í því húsi sem hentar þér.

42 dagar

Með 12% hlut í stakri eign fylgja 6 vikur, eða 42 dagar, á ári í því húsi.

Tvær eignir

Þú getur keypt 12% hlut í bæði Húsafelli og á Akureyri fyrir samtals 33 m.kr. Þá færðu 6 vikur í hvoru húsi, samtals 84 daga á ári.

8% hlutur

Þriggja eigna samfélag kostar 33 m.kr. samtals. Þú eignast 8% hlut í þremur frístundaeignum.

84 dagar

Þriggja eigna samfélagi fylgja 12 vikur, eða 84 dagar, á ári samtals þegar allar eignir hafa verið afhentar: 4 vikur í hverju húsi.

Afhending

Húsafell og Akureyri eru afhent og tilbúin til notkunar. Þriðja húsið verður afhent vorið 2027.

Þú greiðir aðeins fyrir afhentar eignir. Síðasti þriðjungur kaupverðs greiðist við afhendingu þriðja hússins.

Ef þriðja húsið hentar þér ekki þegar það er kynnt getur þú fallið frá kaupunum og fengið endurgreiðslu samkvæmt skilmálum samnings. Við förum yfir fyrirkomulagið með þér áður en þú kaupir.

Reglur

Reglur sem tryggja jafnræði og gæði

Heimkoma er hönnuð til að tryggja sanngirni fyrir alla eigendur. Með skýrum reglum og bókunarkerfi er tryggt að allir njóti réttinda sinna. Nánar um reglur.

Bókanir

Bókaðu dvöl í kerfi Heimkomu

Þú bókar dvöl í kerfi Heimkomu með einföldum hætti. Þú getur skipulagt helgar, sumarfrí eða styttri dvöl með stuttum fyrirvara. Ef þú vilt breyta dagsetningum eða skiptast á dögum við aðra í samfélaginu, er það líka hægt – allt innan öruggs og skýrs kerfis.

Reglurnar eru skýrar

Reglurnar eru eigendum til verndar. Þær fjalla um bókanir, nýtingu, umgengni og skyldur Heimkomu.

Reglur gera þetta einfalt

Þetta er einfalt og gengur útá það að reglurnar eru skýrar og þekktar frá upphafi. Ekkert kemur á óvart.

Allar reglur eru fyrirliggjandi frá upphafi og eru skrifaðar til að hámarka réttláta notkun og eyða óvissu. Reglurnar voru skrifaðar í samvinnu við BBA//Fjeldco.

Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa gæðastaðal

Allar frístundaeignir Heimkomu eru uppfærðar, staðlaðar og reknar samkvæmt skýrum gæðastaðli sem við köllum H-Klassa.

H-Klassi tryggir samræmd gæði, hágæða upplifun og áhyggjulausa notkun – óháð því hvaða eign er nýtt hverju sinni.

Heimkoma hannar almennt ekki húsin frá grunni, heldur velur eignir af kostgæfni og uppfærir þær til að uppfylla okkar kröfur.

Við vinnum eingöngu með fagaðilum á hverju sviði og notum viðurkennd og vönduð vörumerki sem standast kröfur okkar um gæði, endingu og notagildi.

Samræmdur gæðastaðall

Allar eignir Heimkomu fylgja sama H-klassa staðli. Það tryggir jafnt gæðastig, fagmennsku og upplifun í öllum eignum – óháð aldri, staðsetningu eða upprunalegri hönnun hússins.

Innréttingar og húsgögn

Eignir eru uppfærðar með vönduðum innréttingum og húsbúnaði frá leiðandi framleiðendum. Val á efnum, húsgögnum og lausnum miðast við mikla notkun, auðvelt viðhald og tímalaust útlit.

Nútíma þægindi og tækni

Allar eignir eru fullbúnar til notkunar allt árið og útbúnar nútímalegum lausnum þar sem við á – svo sem hraðvirku neti, öryggiskerfum og snjalllausnum. Allt er sett upp með notendavænni upplifun og einfaldri umsjón að leiðarljósi.

Heilsu- og slökunaraðstaða (þar sem við á)

Þar sem aðstæður leyfa eru eignir uppfærðar með heitum og köldum potti, gufubaði eða sambærilegri aðstöðu. Slík aðstaða er valin og sett upp af fagaðilum og hönnuð til notkunar allt árið.

Heimkoma sér um allt – þú nýtur frístundanna

Heimkoma sér um daglega umsýslu, rekstur og viðhald fyrir hönd eigenda. Þú deilir kostnaði með öðrum eigendum samkvæmt samningi og færð meiri tíma til að njóta frístundanna.

Heimkoma sér meðal annars um:

Allt utanumhald og daglegan rekstur

Heimkoma annast allan daglegan rekstur eignanna fyrir hönd eigenda. Þú þarft ekki að hafa yfirsýn yfir reikninga, samninga eða þjónustuaðila – allt er skipulagt, greitt og haldið utan um í einu kerfi.

Öll föst gjöld og rekstrarliði

Við höldum utan um opinber gjöld, tryggingar, rafmagn, hita, net og öryggiskerfi fyrir hönd eigenda. Eigendur deila rekstrarkostnaði samkvæmt samningi.

Reglubundið eftirlit og faglegt viðhald

Eignirnar eru yfirfarnar reglulega samkvæmt skilgreindum verkferlum. Það felur í sér meðal annars músavarnir, fúavernd, hreinlætisúttektir og almennt ástandseftirlit til að tryggja að eignirnar haldist í toppstandi til lengri tíma.

Fagþrif og að eignir séu alltaf tilbúnar til notkunar

Fagþrif fara fram reglulega og eftir þörfum. Markmiðið er að eignin sé alltaf hrein, snyrtileg og tilbúin þegar þú mætir – án þess að þú þurfir að hugsa um undirbúning.

Samræmd gæði og áhyggjulaus upplifun

Heimkoma tryggir að allar eignir uppfylli H-klassa gæðastaðal. Það þýðir samræmd gæði, góð aðstaða og fagleg umsjón, óháð því hvaða eign þú nýtir hverju sinni.

"Mér fannst alltaf sumarhús vera bara fyrir fólk með haug af peningum og tíma. En þegar ég sá hvernig þetta virkar sá ég loksins að þetta væri raunverulega mögulegt fyrir fjölskyldu eins og okkar.”

Viðmælandi í rannsókn - Fjölskyldufaðir í Hafnarfirði

Upplýsingar

Lesefni, bæklingar og greinar

Við höfum tekið saman fjölda greina um fjármögnun, sameign, þjónustu og allt sem viðkemur eignarhaldi frístundaeigna. Greinarnar hjálpa þér að taka upplýsta ákvörðun.

Lesa meira?

Hér á vefnum finnur þú nánari upplýsingar um eignarhald, bókanir og þjónustu. THIRDHOME stendur eigendum Heimkomu til boða sem vilja nýta það, bæði í stökum eignum og þriggja eigna samfélögum.

Póstlisti

Bættu þér á póstlista til að fá upplýsingar um nýjar eignir og ný samfélög.

Algengar spurningar - FAQ

Hér eru algengustu spurningarnar um málið. Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu hvetjum við þig til að hafa samband.
Hvað fæ ég sem eigandi?

Í stakri eign kaupir þú 12% hlut með 6 vikum, eða 42 dögum, á ári. Þú getur keypt hlut í öðru húsinu eða báðum. Í þriggja eigna samfélagi kaupir þú 8% hlut í þremur eignum með samtals 12 vikum, eða 84 dögum, á ári þegar allar eignir hafa verið afhentar. Heimkoma sér um daglega umsjón og rekstur.

Er þetta "time share" eða leiga?
Þetta er ekki „time share“. Þú átt hluta í fasteign og getur selt hann hvenær sem er samkvæmt samningi.
Getur Heimkoma breytt reglum?
Já, Heimkoma má uppfæra bókunar-, hús- og útleigureglur ef þörf krefur, með tilkynningu í kerfinu. Þó ekki þannig að fjöldi nýtingadaga minnki.
Hver sér um daglegan rekstur?
Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og allan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri eða viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og þau komu að henni. Eigendur geta valið að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.
Hvað gerist ef eigendur brjóta reglur?

Allar reglur um samfélagið eru skrifaðar með það í huga að vernda þá sem vilja skýrar reglur og fara eftir þeim. Ítrekuð og alvarleg brot á reglum geta leitt til alvarlegra afleiðinga.

Nánar um kosti sameignar

Eignarhald, þægindi og daglegt líf með Heimkomu

Þú nýtur lífsins, Heimkoma sér um rekstur og viðhald

Sameign er ný leið til að eignast frístundaeign. Þú átt í einu eða fleiri húsum en greiðir aðeins brot af því sem það kostar að eiga eign ein. Minni fjárfesting, minni kostnaður.

Kaup á hlut í frístundaeign hjá Heimkomu er fjárfesting í fasteign. Þú ert þinglýstur eigandi.

Þú nýtur eignarinnar, við sjáum um rest.

HEIMKOMA í fjölmiðlum

Velkomin/n heim

Heimkoma byggir upp og rekur samfélög eigenda sem eiga saman vandaðar fasteignir. Þú kaupir þinglýstan eignarhlut, færð afnot í samræmi við hlutinn og deilir kostnaði með öðrum eigendum.

Sameign dregur bæði úr upphaflegri fjárbindingu og rekstrarkostnaði hvers eiganda samanborið við að eiga sambærilega eign einn.

Við sjáum um bókunarkerfi, daglegan rekstur, viðhald og samskipti.

Kostir sameignar

  •  Minni fjárbinding
  •  Þinglýst og skýrt eignarhald
  •  Betri nýting fasteigna
  •  Kostnaður dreifist á eigendur
  •  Sveigjanlegt og sanngjarnt bókunarkerfi
  •  Rekstur og viðhald í höndum Heimkomu

Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti

Heimkoma í sinni einföldustu mynd

Ein eign eða þrjár. Þú velur.

Heimkoma býður tvær leiðir fyrir kaupendur. Þú getur eignast hlut í stakri eign eða í samfélagi þriggja eigna.

Í báðum tilfellum ert þú þinglýstur eigandi. Þú hefur afnot í samræmi við hlutinn og deilir rekstrarkostnaði með öðrum eigendum.

Heimkoma sér um bókunarkerfi, rekstur og viðhald. Þú átt eignina – við sjáum um rest.

Stök eign

  • Þinglýstur 12% eignarhlutur
  • 42 dagar – sex vikur á ári
  • Hægt að kaupa fleiri en einn hlut
  • Rekstrarkostnaður skiptist á milli eignarhluta
  • Heimkoma sér um rekstur og viðhald



Samfélag þriggja eigna

  • Þinglýstur 8% eignarhlutur í þremur eignum
  • 84 dagar – tólf vikur á ári
  • Fjórar vikur í hverri eign
  • Rekstrarkostnaður skiptist á milli eigenda
  • Heimkoma sér um rekstur og viðhald

Hvers vegna Heimkoma?

Viðráðanleg fjárfesting og rekstrarkostnaður

Það er dýrt að eiga sumarhús – en það þarf ekki að vera þannig. Heimkoma gerir fleirum kleift að eignast draumaeignir með minni fyrirhöfn.

Fjárfesting

Þú kaupir hlut í fasteignum og nýtur þeirrar fjárfestingar - bæði í formi ávöxtunar og af nýtingu eignarinnar.

Rekstur

Kostnaður við rekstur og viðhald deilist á alla eigendur auk þess sem Heimkoma sér um allt skipulag.

Þrjú hús, tólf fjölskyldur, eitt einfalt kerfi

Ef þú átt sumarbústað eða frístundaeign á Íslandi af svipuðum gæðum og hús HEIMKOMU má gera ráð fyrir fjárfestingu uppá 100-120 milljónir. 

Fjárfestingin er mikil auk þess sem rekstrar- og viðhaldskostnaður er talsverður, en það þarf ekki að vera þannig. Í samfélagi hjá Heimkomu áttu hlut í húsi eða húsum og borgar aðeins í hlutfalli við eignarhlut þinn.

Heimkoma gerir venjulegu fólki kleift að eignast draumaeignir með lágmarks fyrirhöfn.

Heimkoma hefur umsjón með öllu sem þarf að huga að, en eigendur geta notið þeirra fríðinda að njóta lífsins í sínu eigin frístundahúsi.

12 fjölskyldur

12 vikur

3 hús

“Við fórum loksins upp í bústað og þá eyddi hann helginni í að fúaverja, laga hurðir og slá garðinn. Ég vildi bara koma og slaka á. Heimkoma leysir þetta allt – þetta er snilld.”

Guðlaug - fyrrverandi sumarhúsa eigandi og þátttakandi í rýnihóp

Hvernig virkar sameign?

Þú kaupir eignarhlut í fasteign/um með öðrum. Þú færð aðgang að kerfum Heimkomu og getur bókað ákveðinn fjölda daga á ári. Þú átt ekki fasta daga, en þú átt ákveðinn fjölda daga sem þú bókar þegar þér hentar.

Þú ert þinglýstur eigandi af fasteign/um og nýtur þess ef virðið eykst og þú getur selt þegar þér hentar. Rekstrarkostnaður dreifist á eigendur þannig að hann er mun lægri en hjá þeim sem eiga eign að fullu.

Heimkoma sér um rekstur, viðhald og þjónustu.

Þetta eru þægindin sem við viljum veita okkur

Einfaldaðu þér lífið og njóttu þess að vera á þínu öðru heimili áhyggjulaust.

Lúxus og gæði í hverju einasta húsi

Fjölbreytileiki

Áhyggjuleysi

FAQ

Algengar spurningar

Hér eru algengustu spurningarnar um málið.
Ef þú finnur ekki svarið við þinni spurningu þá hvetjum við þig til þess að hafa samband.

Hvað fæ ég sem eigandi?

Þú eignast hlut í einni eða fleiri fasteignum með öðrum og færð ákveðin fjölda daga til afnota í samræmi við eignarhlut og fjölda eigna. Í bónus færð þú líka áhyggjuleysi vegna umsjónar og reksturs, það er á ábyrgð Heimkomu.

Er þetta "time share" eða leiga?

Þetta er ekki „time share“. Þú átt þinglýstan hlut í fasteign sem hægt er að selja hvenær sem er.

Getur Heimkoma breytt reglum?

Já, Heimkoma má uppfæra bókunar-, hús- og útleigureglur ef þörf krefur, með tilkynningu til allra eiganda. Reglum má þó ekki breyta þannig að réttur eigenda til fjölda nýtingadaga minnki.

Hver sér um daglegan rekstur?

Heimkoma sér alfarið um bókanir, viðhald, tryggingar og annan rekstur. Eigendur þurfa ekki að sinna rekstri né viðhaldi. Skylda eigenda er að ganga vel um eignina og skila henni af sér í sambærilegu ástandi og komið er að henni. Eigendur hafa val um að láta þrífa eftir sína heimsókn á eigin kostnað, eða sinnt því sjálfir.

Hvað gerist ef eigendur brjóta reglur?
Allar bókanir fara í gegnum bókunarkerfi Heimkomu. Kerfið er sett upp samkvæmt bókunarreglum og tekur mið af notkun hvers eiganda.

Taktu fyrsta skrefið – við sýnum þér restina

Sameignarfyrirkomulagið er þekkt um allan heim.
Hér á landi hefur þetta fyrirkomulag helst verið nýtt varðandi flugvélar og báta, en nú nýtist þetta fyrirkomulag til að einfalda okkur að eignast drauma frístundaeign án mikillar fjárfestingar og samviskubits af lítilli notkun eða þess að vera með hnút í maganum út af banki í ofnunum.

Fáðu nánari upplýsingar sendar með tölvupósti

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.