Inn- og útganga – eignarhald með framtíðarsýn

Grein birt 2026-01-04.

Inn- og útganga – eignarhald með framtíðarsýn
Skýringarmynd úr myndasafni Heimkomu.
Núverandi fyrirkomulag Heimkomu

Greinin hér að neðan er frá þeim tíma sem hún var birt. Kynntu þér uppfærðar bókunarreglur, verð og gjöld og Tekjudaga. Samningur viðkomandi eiganda ræður réttindum og greiðsluskilmálum.

Eignarhald sem fylgir lífinu – líka þegar þú vilt selja

Þeir sem ganga til liðs við Heimkomu hugsa til lengri tíma. Um fjárfestingu í fasteignum er að ræða og hugmyndin er að njóta þeirra í mörg ár, með fjölskyldu og vinum. Allt er þó breytingum háð og þess vegna tryggir Heimkoma að útganga með sölu sé einföld þannig að óvissan hverju sinni er lágmörkuð.

Venga þessa var algjör lykilforsenda frá fyrsta degi að eignarhald hjá Heimkomu væri sveigjanlegt – ekki aðeins þegar þú gengur inn, heldur líka þegar þú ákveður að ganga út.

Þú mátt selja hvenær sem er – á hvaða verði sem er

Sem eigandi hjá Heimkomu hefur þú fullt frelsi til að selja þinn hlut:

  • þú mátt selja hvenær sem er
  • þú mátt selja á hvaða verði sem er
  • þú mátt selja í samstarfi við Heimkomu eða með öðrum aðila að eigin vali

Eina skilyrðið er eðlilegt og sanngjarnt: allir nýir kaupendur þurfa að uppfylla reglur og skilmála samfélagsins, líkt og allir aðrir eigendur. Það tryggir jafnræði, gæði og stöðugleika – án þess að skerða rétt seljandans.

Þetta þýðir að þú ert aldrei „fastur“. Þú stjórnar ákvörðuninni, tímasetningunni og verðinu.

Algengasta spurningin: „Hvað ef salan gengur illa?“

Þetta er eðlileg spurning – og ein sú mikilvægasta. Í hefðbundnum orlofs- og frístundaeignum getur sala tekið nokkurn tima og ekki óalgengt að sjá sölutíma vera eitt, tvö eða jafnvel þrjú ár.

Hjá Heimkomu gerum við þetta einfaldara og öruggara.

Skýr skuldbinding: Heimkoma kaupir þig út innan 18 mánaða

Ef þú setur þína eign í sölu og hún hefur ekki selst innan 18 mánaða, þá er það skuldbinding Heimkomu að:

kaupa eignina af þér og þannig leysa þig út.

Þetta er ekki óljóst loforð eða undantekning – heldur skýr hluti af grunnfyrirkomulagi Heimkomu. Þannig tryggjum við að eigendur sitji aldrei í óvissu eða aðstæðum sem þeir ráða ekki við.

Útganga er hluti af heilbrigðu eignarhaldi

Útganga úr Heimkomu er ekki neyðarlausn. Hún er eðlilegur, skilgreindur hluti af fyrirkomulaginu. Reglurnar eru settar til að vernda bæði seljandann og samfélagið í heild og byggja meðal annars á:

  • skýrum reglum um sölu eignarhlutar
  • jafnræði eigenda, óháð tímasetningu
  • fyrirsjáanlegu ferli án óþarfa flækju
  • stöðugleika og samfellu í samfélaginu

Traust byggist á skýrum ramma

Þetta skapar raunverulegt öryggi – ekki aðeins í orði, heldur í framkvæmd.

Við trúum því að traust byggist ekki á óljósum loforðum, heldur á skýrum réttindum og ferlum. Þegar inn- og útganga eru skilgreind fyrirfram verður eignarhaldið einfaldara, sanngjarnara og öruggara fyrir alla.

Inn- og útganga hjá Heimkomu er því ekki veikleiki í kerfinu – heldur einn af sterkustu hornsteinum þess.

Fyrir nánari yfirsýn mælum við einnig með:

FAQ – Algengar spurningar um Heimkomu

Tengt efni

Fleiri greinar

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.

Frístundahús og Heimkoma

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Áhugi á íbúð í Reykjavík? ↗

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.