Sælureitur í Húsafelli
Hraunbrekkur 22 · Húsafell · Tilbúið til notkunar

Sælureitur í Húsafelli.

Fullbúið hús, náttúra og ró. Veldu hlut í þínum sælureit eða eignarhald á þremur stöðum.

Þinn staður í Húsafelli

Komdu heim.
Njóttu þess að vera.

180 m²Stærð
5Svefnherbergi
3Baðherbergi
10Gistiaðstaða

Þetta glæsilega frístundahús í Húsafelli sameinar lúxus, ró og hlýja heimilisstemningu í einu eftirsóttasta útivistarsvæði landsins. Húsið er rúmgott og vel skipulagt með góðum svefnrýmum og björtum sameiginlegum svæðum þar sem fjölskylda og vinir geta notið samveru í þægindum.

Stórir gluggar tengja rýmin við náttúruna og fylla húsið af birtu og ró. Í stofu og borðrými myndast notaleg stemning þar sem einfalt er að slaka á eftir daginn. Útisvæðið er sérstaklega vel heppnað með rúmgóðri verönd, heitum og köldum potti og sauna sem skapa einstaka aðstöðu til slökunar allt árið.

Hér er allt tilbúið – vönduð innrétting, fullbúið eldhús og þægindi sem gera dvölina einfaldlega betri frá fyrstu mínútu.

Húsafell býður upp á fjölbreytta upplifun allt árið, hvort sem það eru gönguferðir, jöklaferðir, sundlaugar, norðurljós eða rólegir dagar í kyrrðinni. Þetta er staður til að njóta, hvíla sig og skapa minningar í einstöku umhverfi.

Rými í húsi Heimkomu í Húsafelli
Þú átt. Þú nýtur. Við sjáum um rest.
Allt til staðar

Þægindi sem fylgja húsinu.

  • Þráðlaust net (Wi-Fi)
  • Útisvæði
  • Snjallheimili
  • Kaldur pottur
  • Heitur pottur
  • Háhraða nettenging
  • Gufubað
  • Gæludýravænt
  • Gæðainnréttingar
  • Bílastæði

Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa — sameiginlegan gæðastaðal um búnað, þægindi og umsjón.

Eitt hús. Tvær leiðir.

Veldu þína leið til að eiga.

Eigðu hlut í þessu húsi einu eða eignarhlut í þremur húsum. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón í báðum tilfellum.

Stök eign

Húsafell

16.000.000 kr.

Kaupverð fyrir 12% hlut í þessu húsi

Þinn fasti staður í Húsafelli, með sex vikum til afnota á hverju ári.

  • Þinglýstur 12% eignarhlutur
  • 42 dagar · 6 vikur á ári í þessu húsi
  • Bókað í bókunarkerfi Heimkomu
  • Rekstrarkostnaður deilist á eigendur
Ræðum staka eign
Þriggja eigna samfélag

Þrír staðir til að koma heim á.

33.000.000 kr.

Heildarkaupverð fyrir 8% hlut í hverju þriggja húsa

Húsafell, Akureyri og Suðurland. Fjórar vikur í hverju húsi þegar allar eignir hafa verið afhentar.

  • Þinglýstur 8% hlutur í hverri eign
  • 84 dagar · 12 vikur á ári við fulla afhendingu
  • Tvö hús afhent · Suðurland vorið 2027
  • Síðustu 11 m.kr. greiðast við afhendingu þriðja hússins

Hin tvö húsin í sama samfélagi

AkureyriSuðurland · væntanlegt
Ræðum samfélagiðNánar um þriggja eigna samfélagið ↗

Kaupverð er í íslenskum krónum. Rekstrarkostnaður og önnur gjöld bætast við samkvæmt samningi. Greiðslur, afhending og notkun fara eftir því fyrirkomulagi sem þú velur.

Skoðaðu húsið

Rými fyrir þitt líf.

15 myndir af húsinu og aðstöðunni. Veldu mynd til að skoða hana stærri.

Gakktu inn

3D göngutúr.

Skoðaðu rýmin og kynntu þér skipulagið áður en þú kemur í heimsókn.

Þetta efni kemur frá Matterport og hleðst ekki fyrr en þú samþykkir markaðsvafrakökur.

Breyta vafrakökustillingum
Skipulagið

Pláss fyrir samveru.
Og næði.

Skoðaðu herbergjaskipan og sameiginleg rými hússins.

Opna stærri grunnmynd
Grunnmynd hússins í Húsafelli
Húsafell

Rétti staðurinn
fyrir þína dvöl.

Hraunbrekkur 22 · Húsafell

Húsafell býður upp á gönguleiðir, jöklaferðir, sund og útiveru. Náttúran og kyrrðin skapa umgjörð fyrir góða daga með fjölskyldu og vinum.

Þetta efni kemur frá Google Maps og hleðst ekki fyrr en þú samþykkir markaðsvafrakökur.

Breyta vafrakökustillingum
Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.

Frístundahús og Heimkoma

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Áhugi á íbúð í Reykjavík? ↗

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.