Af hverju er rétti tíminn núna fyrir Heimkomu?

Grein birt 2026-01-04.

af-hverju-retti-timinn-nuna
Skýringarmynd úr myndasafni Heimkomu.
Núverandi fyrirkomulag Heimkomu

Greinin hér að neðan er frá þeim tíma sem hún var birt. Kynntu þér uppfærðar bókunarreglur, verð og gjöld og Tekjudaga. Samningur viðkomandi eiganda ræður réttindum og greiðsluskilmálum.

Tímasetning skiptir máli

Góðar hugmyndir verða ekki til í tómarúmi. Þær verða til þegar aðstæður kalla á breytingar. Heimkoma er svar við þróun sem hefur verið í gangi um nokkurt skeið, þar sem fasteignamarkaður, lífsstíll og tækni mætast á nýjan hátt. Það er ekki ein ástæða fyrir því að tíminn sé réttur núna – heldur samspil margra þátta.

Hér eru sex lykilatriði sem skýra hvers vegna lausn eins og Heimkoma á sérstaklega vel við einmitt núna.

1. Hækkandi fasteignaverð kallar á nýjar leiðir

Á undanförnum árum hefur fasteignaverð hækkað verulega, á það líka við um frístundareignir. Fyrir mörg heimili þýðir þetta að þótt tekjur séu góðar og fjárhagsstaðan traust, hefur svigrúm til frekari fasteignakaupa minnkað. Jafnvel fólk í vel launuðum störfum upplifir að frístundaeignin sem það dreymir um sé orðin utan seilingar. Þegar frístundaeignir hafa jafnframt hækkað hratt í verði, ásamt auknum kostnaði við fjármagn, rekstur og viðhald, verður hefðbundið eignarhald enn erfiðara.

Sameign Heimkomu býður upp á leið til að njóta lífsgæða án þess að bera alla fjárfestinguna einn. Með því að deila eignarhaldi, kostnaði og ábyrgð verður aðgengi að vönduðum frístundaeignum raunhæfara fyrir fleiri.

2. Viðurkenning á deilihagkerfinu

Deilihagkerfið er ekki lengur nýtt hugtak. Fólk er orðið vant því að deila aðgangi að verðmætum, hvort sem það er í samgöngum, vinnurýmum eða þjónustu. Hugmyndin um að „nota án þess að eiga einn“ hefur fest sig í sessi sem skynsamleg og skilvirk lausn.

Heimkoma byggir á þessari hugsun, en færir hana yfir á fasteignir með skýru eignarhaldi. Þetta er ekki leiga, heldur raunveruleg fjárfesting sem skilar arði, með skilgreindum réttindum, eins og nánar er útskýrt í Sameignarform Heimkomu – hvernig það virkar í reynd.

3. Sjálfbær og umhverfisvæn nálgun

Ein stærsta áskorunin á frístundaeignamarkaði er vannýting. Dýrar eignir standa oft tómar stóran hluta ársins, sem er hvorki hagkvæmt né sjálfbært. Betri nýting á eignum dregur úr neikvæðum umhverfisáhrifum og stuðlar að ábyrgari fasteignanotkun og nær samfélagi fasteignanna.

Sum af fallegri bæjarfélögum landsins eru með tugi tómra eigna stóran hluta ársins. Það er vont fyrir alla, sérstaklega nærsamfélag eignana.

4. Skilvirkni með nýrri tækni

Með sameign og skipulagðri notkun nýtast eignir Heimkomu betur, án þess að upplifun eigenda skerðist. Þetta er sjálfbær nálgun sem samræmist breyttum gildum fólks í dag.

Tæknin hefur gjörbreytt því hvernig hægt er að halda utan um eignir og notkun þeirra. Með nútímalegum kerfum, sjálfvirkni og gervigreind er hægt að einfalda bókanir, halda utan um rekstur og tryggja jafnræði án flókins utanumhalds.

Heimkoma nýtir þessa möguleika til fulls. Tæknin gerir sameign ekki aðeins mögulega, heldur einfaldari og áreiðanlegri en áður. Þetta tengist beint því hvernig notkun og jafnræði eru tryggð, sem fjallað er um í Bókunarkerfið og jafnræðið – hvernig Heimkoma tryggir sanngjarna notkun.

5. Yngri fjölskyldur vilja njóta strax, ekki bíða

Fyrir marga í dag er ekki lengur sjálfgefið að bíða í áratugi eftir því að „eignast allt“. Fólk vill njóta lífsins á meðan börnin eru ung, á meðan tími og orka er til staðar. Frístundaeign á að styðja fjölskyldulífið, ekki vera framtíðardraumur sem alltaf er frestað.

Það er skemmtilegast að eiga frístundaeign eða sambærilegan griðarstað meðan börnin eru ennþá ung og spennt að eyða tíma með fjölskyldunni.

Heimkoma gerir fólki kleift að byrja að njóta strax, án þess að þurfa að taka á sig alla fjárhagslega byrði hefðbundins eignarhalds.

6. Markaðsþróun og breyttur lífsstíll

Ferðavenjur hafa breyst, fjarvinna er orðin algengari og áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs hefur aukist. Fólk vill meiri sveigjanleika, fleiri valkosti og betri nýtingu á frítíma sínum.

Margir hafa tök á og vilja geta unnið nokkra daga eða vikur í ró í sinni eigin eign úti á landi. Fjarvinna gerir það áhugaverðara en áður að eiga jafnvel 3 frístundahús.

Við þurfum ekki að fara í nokkurra tíma mengandi flug til njóta helgar eða viku í smá frí. Veltu fyrir þér kostum þess að þurfa ekki að fljúga, heldur að keyra bara í húsið þitt á suður-, vestur- eða norðurlandi.

Heimkoma fellur vel að þessari þróun. Hún er ekki bundin við eina hugmynd um hvernig frístundaeign er notuð, heldur styður við fjölbreyttan lífsstíl nútímans.

Þegar allt fellur saman

Þegar þessir sex þættir eru skoðaðir í samhengi verður ljóst að tímasetningin er ekki tilviljun. Heimkoma er ekki lausn sem kom of snemma eða of seint – heldur nákvæmlega þegar þörfin er orðin skýr.

Tengt efni

Fleiri greinar

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.

Frístundahús og Heimkoma

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Áhugi á íbúð í Reykjavík? ↗

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.