Tekjudagar – þegar frístundaeignin vinnur með þér

Grein birt 2026-01-04.

Tekjudagar - þegar frístundaeignin vinnur með þér
Skýringarmynd úr myndasafni Heimkomu.
Núverandi fyrirkomulag Heimkomu

Greinin hér að neðan er frá þeim tíma sem hún var birt. Kynntu þér uppfærðar bókunarreglur, verð og gjöld og Tekjudaga. Samningur viðkomandi eiganda ræður réttindum og greiðsluskilmálum.

Þegar notkunin er ekki alltaf sú sama

Flestir fá sér frístundaeign með eigin notkun í huga. Samt vitum við að lífið breytist. Á sumum tímabilum nýtist eignin mikið, á öðrum minna. Vinna, fjölskylduaðstæður, ferðalög eða einfaldlega önnur forgangsröðun getur haft áhrif á hversu oft fólk vill vera í frístundaeign sinni á hverju ári.

Við hjá Heimkomu töldum mikilvægt að eignarhaldið gæti lagað sig að þessum breytingum – án þess að flækja fyrirkomulagið eða breyta grunnforsendum þess.

Tekjudagar eru valkostur, ekki krafa

Tekjudagar eru einföld leið fyrir eigendur til að ráðstafa þeim vikum sem þeir sjá ekki fyrir sér að geta nýtt sjálfir. Í stað þess að vikur standi ónotaðar er hægt að setja þær í skipulagða útleigu sem Heimkoma sér alfarið um.

Það er þó mikilvægt að undirstrika að Tekjudagar eru valkvæðir. Enginn eigandi er skuldbundinn til að nýta þá, og ákvörðunin er tekin með reglulegum hætti fyrirfram. Það er líka rétt að taka skýrt fram að hver eigandi má ekki leigja út húsnæði þar sem enginn á ákveðna daga. Öll útleiga, sem ætti að vera takmörkuð, fer fram í gegnum Heimkomu.

Tekjudagar fela meðal annars í sér:

  • skipulagða útleigu á vikum sem eigandi notar ekki
  • fulla umsýslu í höndum Heimkomu
  • skýrar reglur sem tryggja jafnræði innan samfélagsins
  • fyrirsjáanlegt ferli án beinnar aðkomu eigenda

Þetta er viðbót við eignarhaldið og aðallega hugsað til einföldunar fyrir eigendur, enn ekki sem sjálfstæð tekjuöflun.

Heimkoma sér um ferlið frá upphafi til enda

Útleiga frístundaeigna getur verið tímafrek og krefjandi. Samskipti við gesti, verðlagning, þrif, viðhald og eftirfylgni krefjast mikillar vinnu. Með Tekjudögum taka eigendur ekki þátt í þessu ferli.

Heimkoma sér um framkvæmdina í heild, í samræmi við reglur samfélagsins og fyrirfram skilgreint skipulag. Þetta tengist beint þeirri þjónustu sem fjallað er um í Heimkoma sér um allt – hvað þýðir það í raun?

Jafnvægi milli notkunar og sveigjanleika

Tekjudagar eru hannaðir til að styðja við jafnvægi. Þeir eiga ekki að breyta frístundaeign í útleigueign, heldur að veita eigendum sveigjanleika þegar notkun breytist tímabundið.

Þetta jafnvægi er mikilvægt fyrir heildina og tengist einnig því hvernig notkun og jafnræði eru tryggð, sem nánar er fjallað um í Bókunarkerfið og jafnræðið – hvernig Heimkoma tryggir sanngjarna notkun.

Skýrleiki skapar traust

Allt fyrirkomulag Tekjudaga byggir á skýrum reglum og gagnsæi. Eigendur vita fyrir fram hvernig ferlið virkar, hvernig vikur eru skilgreindar og hvernig jafnræði er tryggt innan samfélagsins. Þetta gerir valkostinn raunhæfan til lengri tíma og styður við þá framtíðarsýn sem fjallað er um í Inn- og útganga – eignarhald með framtíðarsýn.

Tengt efni

Fleiri greinar

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.

Frístundahús og Heimkoma

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Áhugi á íbúð í Reykjavík? ↗

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.