Annað húsið komið í sýningu – Heimkoma á Akureyri

Grein birt 2026-03-10.

Annað húsið komið – Heimkoma á Akureyri
Mynd úr myndasafni Heimkomu.
Núverandi fyrirkomulag Heimkomu

Greinin hér að neðan er frá þeim tíma sem hún var birt. Kynntu þér uppfærðar bókunarreglur, verð og gjöld og Tekjudaga. Samningur viðkomandi eiganda ræður réttindum og greiðsluskilmálum.

Annað húsið komið – Heimkoma á Akureyri

Það er alltaf sérstök tilfinning þegar nýtt hús bætist í Heimkomu.

Núna getum við loksins sagt frá því að annað húsið í fyrsta þriggja húsa samfélagi Heimkomu er komið í safnið.

Húsið stendur við Hafnarstræti á Akureyri, örstutt frá miðbænum en samt á rólegum og fallegum stað. Héðan er frábært útsýni yfir Pollinn og fjöllin í kring, sem gerir staðsetninguna bæði einstaka og mjög eftirsótta.

Við höfðum fylgst með þessu húsi í nokkurn tíma. Þegar tækifærið loksins kom vissum við að þetta væri fullkomin viðbót við fyrsta samfélag Heimkomu.

Fallegt einbýlishús með einstöku útsýni

Húsið er rúmlega 200 fermetra einbýlishús sem rúmar allt að 10 gesti með góðu móti.

Helstu atriði hússins eru meðal annars:

  • um 216 fermetrar
  • 5 svefnherbergi
  • 3 baðherbergi
  • verönd og svalir
  • heitur pottur og sauna
  • bílastæði við húsið
  • einstakt útsýni yfir Pollinn

Húsið er byggt árið 1923 en hefur verið mikið endurnýjað á smekklegan hátt síðustu ár. Það sameinar þannig sjarma eldri húss við nútímalega aðstöðu og góða nýtingu rýmis.

Staðsetningin

Einn stærsti kostur hússins er staðsetningin.

Það er stutt í miðbæ Akureyrar, veitingastaði, menningu og allt það sem bærinn hefur upp á að bjóða. Á sama tíma er húsið á stað þar sem ríkir ró og fallegt útsýni.Hér fyrir neðan má sjá nákvæma staðsetningu hússins á korti.

Heimkoma setur sitt mark á húsið

Við tökum við húsinu í byrjun júní.

Þá fer Heimkoma í lokaáfanga uppsetningar þar sem húsið verður:

  • innréttað í anda Heimkomu
  • búið nýjum húsgögnum
  • með nýjum heimilistækjum
  • með sambærilegum búnaði og í hinum Heimkomu-húsunum

Markmiðið er að þegar eigendur komi í hús Heimkomu — hvort sem það er á Akureyri, í Húsafelli eða annars staðar — þá líði þeim alltaf eins og að þeir séu að koma heim.

Hluti af fyrsta Heimkomu-samfélaginu

Þetta hús er annað húsið í fyrsta þriggja húsa samfélagi Heimkomu.

Í slíku samfélagi:

  • 12 eigendur eiga saman 3 hús
  • hver eigandi fær 12 vikur á ári
  • eigendur eru skráðir á afsal og eiga raunverulegan hlut í fasteignunum

Heimkoma sér síðan um rekstur, viðhald og alla þjónustu.

Afhending húsanna

Við erum þegar farin að afhenda fyrsta húsið til eigenda.

  • Hús 1 – þegar komið í notkun
  • Hús 2 (Akureyri) – afhent í byrjun júní
  • Hús 3 – verður afhent í haust

Eigendur greiða aðeins fyrir þau hús sem hafa verið afhent. Þegar ný hús bætast við samfélagið kemur sá hluti fjárfestingarinnar til greiðslu.

Við munum fara ítarlega yfir hvernig kaupferlið og afhending hvers húss virkar í næstu færslu hér á síðunni.

Myndir af húsinu

Hér fyrir neðan má sjá fyrstu myndir af húsinu að utan og umhverfi þess.

Innanhúss verður húsið uppfært og innréttað af Heimkomu í byrjun júní og við munum sýna þær myndir síðar.

Viltu fylgjast með?

Það er nú þegar mögulegt að verða eigandi í fyrsta samfélagi Heimkomu.

Við segjum nánar frá því í næstu færslum hvernig eignarhald, kaupferlið og afhending húsanna virkar.

Fleiri greinar

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.

Frístundahús og Heimkoma

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Áhugi á íbúð í Reykjavík? ↗

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.