Fyrstu skrefin sem eigandi hjá Heimkomu

Grein birt 2026-01-04.

Fyrstu skrefin sem eigandi hjá Heimkomu
Skýringarmynd úr myndasafni Heimkomu.
Núverandi fyrirkomulag Heimkomu

Greinin hér að neðan er frá þeim tíma sem hún var birt. Kynntu þér uppfærðar bókunarreglur, verð og gjöld og Tekjudaga. Samningur viðkomandi eiganda ræður réttindum og greiðsluskilmálum.

Þegar ákvörðunin liggur fyrir

Flestir sem kynna sér Heimkomu nota tímann í að velta fyrir sér fyrirkomulaginu, bera saman valkosti og spyrja spurninga. Þegar ákvörðunin er loks tekin skiptir miklu máli að ferlið sjálft sé einfalt, fyrirsjáanlegt og án óþarfa flækja.

Við hjá Heimkomu lögðum því ríka áherslu á að fyrstu skrefin sem eigandi væru jafn skýr og eignarhaldið sjálft.

Skýrt ferli frá fyrsta degi

Innganga í Heimkomu byggir á stafrænu ferli þar sem allar upplýsingar eru aðgengilegar á einum stað. Eigendur fá skýra yfirsýn yfir eignarhlut sinn, réttindi og skyldur áður en gengið er frá kaupum.

Strax í upphafi fá eigendur:

  • staðfestingu á eignarhlut sínum
  • aðgang að kerfum Heimkomu
  • yfirsýn yfir bókanir og notkun
  • upplýsingar um reglur og þjónustu

Engin óvissa, ekkert óskýrt

Aðgangur að bókunum og upplýsingum

Eftir að aðgangur hefur verið veittur geta eigendur skoðað stöðu bókana, skipulagt komandi dvöl og kynnt sér hvernig notkun dreifist yfir árið. Kerfin eru hönnuð með einfaldleika í huga og krefjast engrar sérþekkingar.

Þetta tengist beint því hvernig bókanir eru skipulagðar, sem útskýrt er nánar í

Bókunarkerfið og jafnræðið – hvernig Heimkoma tryggir sanngjarna notkun.

Fyrsta dvölin – upplifunin skiptir máli

Fyrsta dvölin í frístundaeign Heimkomu er oft augnablik þar sem hugmyndin verður að raunveruleika. Eigendur mæta að húsi sem er tilbúið til notkunar, hreint, vel við haldið og í samræmi við væntingar.

Það er enginn undirbúningur sem þarf að klára áður en slakað er á. Frístundin byrjar um leið og komið er í hús.

Stuðningur þegar á þarf að halda

Þó að ferlið sé einfalt vitum við að spurningar geta alltaf komið upp. Eigendur hafa aðgang að stuðningi Heimkomu þegar á þarf að halda, hvort sem um er að ræða bókanir, notkun eða almenna fyrirspurn.

Fyrir þá sem vilja kynna sér algengustu spurningarnar fyrirfram er gagnlegt að lesa

Algengar spurningar – og af hverju þær skipta máli.

Fyrstu skref sem skapa öryggi til lengri tíma

Góð innleiðing í samfélagið skiptir öllu máli. Upplifun frá fyrsta degi leggur grunninn að ánægju, trausti og einföldu eignarhaldi til framtíðar. Þegar eigendur vita nákvæmlega hvernig allt virkar, hvert þeir geta leitað og við hverju má búast, verður allt ferlið bæði skýrara og öruggara.

Þess vegna leggjum við mikla áherslu á innleyðingarferlið. Frá fyrsta degi færðu allar nauðsynlegar upplýsingar, skýr svör við algengum spurningum og aðgang að fræðandi ferlum sem leiða þig jafnt og þétt inn í samfélagið. Markmiðið er einfalt: að þú getir notið eignarinnar án óvissu eða flækjustigs.

Mikilvægur hluti af þessu öryggi er einnig sveigjanleikinn. Allir eigendur eiga að vita að þeir geta gengið inn í samfélagið – og út úr því – þegar þeim hentar. Þú getur selt þína eign hvenær sem er. Ef þér tekst ekki að selja sjálfur, er það skuldbinding Heimkomu að kaupa eignina af þér og leysa þig út innan 18 mánaða.

Þannig er framtíð eignarhaldsins hugsuð: skýr, sveigjanleg og byggð á trausti – nánar er fjallað um það í næsta kafla Inn- og útganga – eignarhald með framtíðarsýn.

Tengt efni

Fleiri greinar

Taktu næsta skref

Finnum þína Heimkomu.

Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.

Frístundahús og Heimkoma

Fáðu nánari upplýsingar.

Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.

Áhugi á íbúð í Reykjavík? ↗

Með fyrirspurninni óskar þú eftir upplýsingum frá Heimkomu. Persónuverndarstefna.

Skráning er ekki opin á þessari síðu eins og er. Reyndu aftur síðar eða hringdu í 647 6000.