Húsafell
Kaupverð fyrir 12% hlut í þessu húsi
Þinn fasti staður í Húsafelli, með sex vikum til afnota á hverju ári.
- Þinglýstur 12% eignarhlutur
- 42 dagar · 6 vikur á ári í þessu húsi
- Bókað í bókunarkerfi Heimkomu
- Rekstrarkostnaður deilist á eigendur

Fullbúið hús, náttúra og ró. Veldu hlut í þínum sælureit eða eignarhald á þremur stöðum.
Þessi leið er fyrir þig sem vilt eiga í Húsafelli, á Akureyri og á Suðurlandi. Þú átt 8% í hverri eign og færð fjórar vikur í hverju húsi. Suðurland bætist við vorið 2027.
Þetta glæsilega frístundahús í Húsafelli sameinar lúxus, ró og hlýja heimilisstemningu í einu eftirsóttasta útivistarsvæði landsins. Húsið er rúmgott og vel skipulagt með góðum svefnrýmum og björtum sameiginlegum svæðum þar sem fjölskylda og vinir geta notið samveru í þægindum.
Stórir gluggar tengja rýmin við náttúruna og fylla húsið af birtu og ró. Í stofu og borðrými myndast notaleg stemning þar sem einfalt er að slaka á eftir daginn. Útisvæðið er sérstaklega vel heppnað með rúmgóðri verönd, heitum og köldum potti og sauna sem skapa einstaka aðstöðu til slökunar allt árið.
Hér er allt tilbúið – vönduð innrétting, fullbúið eldhús og þægindi sem gera dvölina einfaldlega betri frá fyrstu mínútu.
Húsafell býður upp á fjölbreytta upplifun allt árið, hvort sem það eru gönguferðir, jöklaferðir, sundlaugar, norðurljós eða rólegir dagar í kyrrðinni. Þetta er staður til að njóta, hvíla sig og skapa minningar í einstöku umhverfi.

Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa — sameiginlegan gæðastaðal um búnað, þægindi og umsjón.
Eigðu hlut í þessu húsi einu eða eignarhlut í þremur húsum. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón í báðum tilfellum.
Kaupverð fyrir 12% hlut í þessu húsi
Þinn fasti staður í Húsafelli, með sex vikum til afnota á hverju ári.
Heildarkaupverð fyrir 8% hlut í hverju þriggja húsa
Húsafell, Akureyri og Suðurland. Fjórar vikur í hverju húsi þegar allar eignir hafa verið afhentar.
Kaupverð er í íslenskum krónum. Rekstrarkostnaður og önnur gjöld bætast við samkvæmt samningi. Greiðslur, afhending og notkun fara eftir því fyrirkomulagi sem þú velur.
Skoðaðu rýmin og kynntu þér skipulagið áður en þú kemur í heimsókn.
Skoðaðu herbergjaskipan og sameiginleg rými hússins.
Opna stærri grunnmynd
Hraunbrekkur 22 · Húsafell
Húsafell býður upp á gönguleiðir, jöklaferðir, sund og útiveru. Náttúran og kyrrðin skapa umgjörð fyrir góða daga með fjölskyldu og vinum.
Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.
Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.