Akureyri
Kaupverð fyrir 12% hlut í þessu húsi
Þinn fasti staður á Akureyri, með sex vikum til afnota á hverju ári.
- Þinglýstur 12% eignarhlutur
- 42 dagar · 6 vikur á ári í þessu húsi
- Bókað í bókunarkerfi Heimkomu
- Rekstrarkostnaður deilist á eigendur

Rúmgott hús við miðbæinn, útsýni yfir Pollinn og þægindi allt árið. Veldu hlut í húsinu eða í þremur eignum.
Þessi leið er fyrir þig sem vilt eiga í Húsafelli, á Akureyri og á Suðurlandi. Þú átt 8% í hverri eign og færð fjórar vikur í hverju húsi. Suðurland bætist við vorið 2027.
Efsta hæð: þrjú svefnherbergi með king-rúmi, queen-rúmi og 120 cm rúmi. Í sjónvarpsrými er svefnsófi. Baðherbergi er með baðkari og sturtu.
Miðhæð: eldhús, borðstofa, stofa með arni og baðherbergi.
Neðsta hæð: tvö svefnherbergi, annað með queen-rúmi og hitt með 120 cm rúmi. Þar eru einnig sjónvarpsrými með svefnsófa og baðherbergi.
Þetta fallega og mikið endurnýjaða einbýlishús á þremur hæðum sameinar lúxus, rými og notalega heimilisstemningu á frábærum stað á Akureyri. Húsið er rúmgott (216 m²) og hentar vel fyrir fjölskyldur og vinahópa með góðu skipulagi og mörgum svefnrýmum.
Miðhæðin er hjartað í húsinu – opið og bjart rými með eldhúsi, borðstofu og stofu þar sem stórir gluggar ramma inn fallegt útsýni yfir Pollinn og í Vaðlaheiði. Arinn skapar hlýja stemningu og útgengt er á rúmgóða verönd með heitum og köldum potti sem nýtist allt árið.
Efri hæðin býður upp á þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi. Neðsta hæðin bætir við sveigjanleika með skemmtilegu leiksvæði, góðu geymslurými, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi.
Staðsetningin er einstök – örstutt í miðbæ Akureyrar en samt í rólegu umhverfi. Þetta er kjörið hús til að njóta alls þess sem Akureyri og Norðurland hefur upp á að bjóða, hvort sem það eru skíðaferðir, gönguferðir, golfferðir eða einfaldlega góðir dagar í fallegu veðri.

Allar eignir Heimkomu uppfylla H-klassa — sameiginlegan gæðastaðal um búnað, þægindi og umsjón.
Eigðu hlut í þessu húsi einu eða eignarhlut í þremur húsum. Heimkoma sér um rekstur, viðhald og daglega umsjón í báðum tilfellum.
Kaupverð fyrir 12% hlut í þessu húsi
Þinn fasti staður á Akureyri, með sex vikum til afnota á hverju ári.
Heildarkaupverð fyrir 8% hlut í hverju þriggja húsa
Húsafell, Akureyri og Suðurland. Fjórar vikur í hverju húsi þegar allar eignir hafa verið afhentar.
Kaupverð er í íslenskum krónum. Rekstrarkostnaður og önnur gjöld bætast við samkvæmt samningi. Greiðslur, afhending og notkun fara eftir því fyrirkomulagi sem þú velur.
Skoðaðu rýmin og kynntu þér skipulagið áður en þú kemur í heimsókn.
Eldri grunnmynd sýnir helstu rými. Merkingar á neðri hæð hafa breyst; núverandi svefnherbergjaskipan er lýst hér að ofan.
Opna stærri grunnmynd
Hafnarstræti 45 · Akureyri
Örstutt frá miðbæ Akureyrar, með útsýni yfir Pollinn og Vaðlaheiði. Njóttu bæjarlífsins, skíðaferða, gönguferða og þess sem Norðurland hefur upp á að bjóða.
Hvaða staður og fyrirkomulag hentar þér? Bókaðu fund eða 15 mínútna símtal og við förum yfir valkostina saman.
Skildu eftir netfangið þitt og við sendum þér nánari upplýsingar. Ef þú vilt símtal frá okkur skaltu einnig skilja eftir símanúmer.